Agricultural University of Iceland
Samhengi milli fæðingarþunga og vaxtarhraða hjá lömbum
Abstract
dc:description.abstractMarkmið rannsóknarinnar var að skoða áhrif fæðingarþunga tvílembingslamba á vaxtarhraða frá fæðingu að fjallrekstri við 6-8 vikna aldur. Einnig var kannað hvort holdastig móður seinni hluta vetrar hefðu áhrif á fæðingarþunga og vaxtarhraða þeirra fyrstu 6-8 vikurnar. Fengnar voru tölur frá fjárræktarbúinu á Hesti frá árunum 2001-2006 um tvílembinga, fæðingarþunga þeirra, vaxtarhraða, aldur ánna ásamt holdastigum á mismunandi tímum vetrar. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að það er marktækt samhengi á milli fæðingarþunga og vaxtarhraða en holdastig mæðranna höfðu hvorki marktæk áhrif á fæðingarþunga né vaxtarhraða. Rannsóknin sýndi einnig fram á að miðað við eldri niðurstöður (Sigurgeir Thorgeirsson & Stefán Sch. Thorsteinsson, 1989) hefur bæði fæðingarþungi og vaxtarhraði aukist.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Birta Berg Sigurðardóttir 1985-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 1Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/9249
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/9249