Back to search

Agricultural University of Iceland

Gaddstaðaflatir: mekka sunnlenskra hestamanna: tillaga að skipulagi

Abstract

dc:description.abstract

Gaddstaðaflatir í Rangárþingi ytra hafa verið mótsstaður hestamanna frá árinu 1955. Þar hafa verið haldin landsmót árin 1986, 1994, 2004 og til stendur að halda þar landsmót 2008. Markmið verkefnisins er tvíþætt. Annars vegar að skipuleggja Gaddstaðaflati þannig að svæðið fullnægi þörfum knapa og mótsgesta á stórmótum. Hins vegar að stuðla að aukinni nýtingu svæðisins allt árið með bættu skipulagi. Verkefni þessu má skipta niður í þrjá hluta. Í fyrsta hluta þess er skýrt frá legu og mörkum athugunarsvæðis. Þar er einnig gripið niður á forsögu hestamannamóta á Íslandi til að dýpka skilning höfundar og lesanda á viðfangsefninu. Í öðrum hluta er fjallað um þær greiningar sem gerðar voru á Gaddstaðaflötum og niðurstöður þeirra. Í þriðja hluta verkefnisins er hönnunartillaga höfundar, sem er byggð á áðurnefndum greiningum, lögð fram. Markmið hönnunartillögu var ekki að kasta öllu því sem fyrir var, enda margt gott í eldra skipulagi. Markmiðið var heldur að koma auga á það sem betur mátti fara. Helstu niðurstöður verkefnisins voru eftirfarandi. Aðkoma að mótssvæði er óspennandi. Þar vantar sterka miðju. Möguleikar til stækkunar sýningarsvæðis eru uppurnir. Fjarlægðir milli tjaldsvæðis og mótssvæðis eru langar og annað svæði er illa nýtt. Hönnunartillaga byggir á því að skapa sterka aðkomu og miðju. Tjaldsvæði eru færð nær mótssvæði og leiksvæði komið fyrir í námunda við þau. Með þessu móti kýs fólk heldur að fara leiða sinna fótgangandi. Gróður er stóraukinn á svæðinu til að skapa skjól og rými. Reiðhöll með löglegum keppnisvelli er komið fyrir. Það eykur nýtingu á svæðinu allt árið. Tjaldsvæði og bílastæði hljóta nýjan tilgang sem beitarhólf milli stórmóta.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Heiða Aðalsteinsdóttir 1981-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/7207
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/7207

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Heiða Aðalsteinsdóttir 1981-. Gaddstaðaflatir: mekka sunnlenskra hestamanna: tillaga að skipulagi. 2011. http://hdl.handle.net/1946/7207