Back to search

Agricultural University of Iceland

Umhverfi stóriðju og menningarminjar sóknarfæri í allra þágu

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur þessa verkefnis var að leita svara við eftirfarandi spurningu: Geta nýtt og gamalt,staðið saman sem andstæður en um leið skapað sterka heild, styrkt hvort annað, hvoru tveggja sem hluti af menningararfleið? Til að leita svara við spurningunni var umhverfi álversins í Straumsvík valið sem viðfangsefni. Sett var fram tillaga sem miðar að því að tengja saman stóriðjuna og nærumhverfi hennar. Áhersla var lögð á að sækja innblástur í menningarminjar á lóðinni, þá sérstaklega Kapellu Heilagrar Barböru. Með því var reynt að varpa ljósi á landslagshönnun sem gæti þjónað hlutverki sem fræðandi þáttur í umhverfinu. Í víðu samhengi var bent á þörf mannsins og samfélagsins fyrir úthugsaða umhverfishönnun og þeim tækifærum sem felast í umhverfinu. Varpað var ljósi á landslagshönnun hérlendis sem byggir á menningararfinum, upplifunarhönnun tveggja þekktra hönnuða var kynnt og gerð var samantekt á laga- og reglugerðarramma er snýr að verndun menningarminja. Til að nálgast viðfangsefnið var fjallað um sögu og menningarminjar í Kapelluhrauni og framkvæmt mat á sjónrænum þáttum í umhverfinu. Með þessari heimildaskoðun, greiningar- og skissuvinnu voru settar fram hugmyndir um útlit svæðisins í kringum álverið í Straumsvík. Hugmyndir sem gætu svarað kalli um samfélagsábyrgð fyrirtækja eins og Alcan og sýn sveitafélaga eins og Hafnarfjarðarbæjar um að „fara vel með“ og þannig stuðlað að bættum lífsgæðum þeirra sem fara um svæðið.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hjördís Sigurðardóttir 1969-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/7104
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/7104

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hjördís Sigurðardóttir 1969-. Umhverfi stóriðju og menningarminjar sóknarfæri í allra þágu. 2010. http://hdl.handle.net/1946/7104