Agricultural University of Iceland
Greining og endurhönnun á Sjallareitnum á Akureyri
Abstract
dc:description.abstractMarkmiðið í þessu verkefni er að gera Sjallareitinn að áhugaverðu svæði sem auðgar menningu og miðbæjarlíf á Akureyri. Tilgangurinn er að þétta byggð og skapa spennandi svæði með aðdráttarafli fyrir ferðamenn sem og íbúa bæjarins. Mikil vinna hefur verið lögð í samkeppni um miðbæ Akureyrar. Þegar þetta verkefni er unnið er Akureyrarbær að vinna deiliskipulagstillögu af miðbænum út frá niðurstöðum þeirrar keppni. Einnig hafa hugmyndir verið kynntar um skipulag á Íþróttavallarsvæðinu á Akureyri. Sjallareiturinn er inn í hvorugri þessara tillagna. Í þessu verkefni styðst höfundur við þau gögn sem til eru og skrásetur allar upplýsingar um staðhætti á svæðinu og vinnur greiningu út frá þeim. Stuðst er við hugmyndafræði Per Stahlschmidt (2001) við greiningarvinnuna. Niðurstaða greiningarinnar var sú að rýmismyndunar er mjög ábótavant og endurskipuleggja þarf allan reitinn í heild sinni með tilliti til niðurrifs og uppbyggingar í framtíðinni. Kenningar Jan Gehl og Lars Gemsøe (2004) um skipulag miðbæjar eru hafðar til hliðsjónar við gerð nýs skipulags á reitnum ásamt því að stuðst er við hugmyndafræði Trausta Valssonar (2004) um form í skipulagi við hönnunarvinnu á reitnum. Niðurstaða skipulags byggir á blandaðri byggð og gerir ráð fyrir tveim byggingum sem mynda tvö skjólsæl og sólrík rými. Nánari hönnun á svæðinu gerir ráð fyrir að annað rýmið sé garður og hitt torg. Reynt er að sameina kosti notagildis og fegurðar á svæðinu og gera reitinn að öruggari og áhugaverðu svæði sem auðgar mannlíf og menningu á Akureyri.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sigurborg Ósk Haraldsdóttir 1984-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/7081
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/7081