Abstract
dc:description.abstractRannsóknin gekk út á að kanna þann vinnuþátt á kúabúum með mjaltaþjóna, sem snýr að tamningu fyrsta kálfs kvígna og aðlögun þeirra að mjaltaþjóninum. Reynt var að gera grein fyrir þeim þáttum sem mögulega geta haft áhrif á tamningartímann. Markmið rannsóknarinnar var að reyna að fá svör við því hvort að erfðaþættir hefðu áhrif á tamningu kvígnanna, hversu lengi þær væru að temjast og hversu þjálar í tamningu þær væru. Efniviður rannsóknarinnar voru upplýsingar um einstaka gripi sem og aðstaða og meðferð gripa á hverju búi. Spurningalistar voru sendir út á rafrænu formi til úrtaks bænda á þeim búum þar sem mjaltaþjónar hafa verið í notkun í nokkurn tíma. Þessir spurningalistar voru unnir upp úr grunni gagna úr skýrsluhaldskerfinu Huppa.is. einnig voru fengnar ýmsar upplýsingar um þá gripi sem rannsóknin náði til úr skýrsluhaldskerfinu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Eyrún Ösp Skúladóttir 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/7074
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/7074