Agricultural University of Iceland
Smáhýsi sem úrræði fyrir brothætt byggðarlög á Íslandi
Abstract
dc:description.abstractRannsóknin fjallar um hvernig smáhýsi geta nýst sem úrræði í húsnæðismálum í brothættum byggðarlögum á Íslandi, þar sem skoðað er hvort og hvernig slíkar lausnir geta stutt við byggðaþróun þar sem húsnæðisframboð er takmarkað og óvissa ríkir um þróun til lengri tíma. Borgarfjörður eystri er tilvik rannsóknarinnar þar sem byggðarlagið endurspeglar margar af þeim áskorunum sem rannsóknin beinist að, meðal annars lítinn og viðkvæman húsnæðismarkað og takmarkaða uppbyggingu nýs húsnæðis. Á undanförnum árum hafa mörg byggðarlög á Íslandi staðið frammi fyrir fólksfækkun, breyttri aldurssamsetningu og takmörkuðu framboði húsnæðis. Þetta á sérstaklega við í brothættum byggðarlögum, þar sem þessir þættir hafa áhrif á búsetuskilyrði og framtíðarmöguleika samfélaga. Hugtakið „Brothættar byggðir“, sem er þróunarverkefni á vegum Byggðastofnunar, er notað yfir slík byggðarlög. Framboð byggingarhæfra lóða er víða takmarkað, sem dregur úr möguleikum til uppbyggingar og gerir sveitarfélögum erfiðara fyrir að bregðast við breytingum í eftirspurn. Þetta getur haft áhrif á búsetuákvarðanir og möguleika fólks til að setjast að til lengri tíma. Takmarkað framboð húsnæðis getur þannig haft áhrif á bæði byggðafestu og þróun samfélaga. Á sama tíma hefur umræðan um smáhýsi aukist sem möguleg lausn á húsnæðisvanda. Smáhýsi hafa verið tengd einfaldari búsetu, minni kostnaði og sveigjanlegri uppbyggingu. Á Íslandi hafa slík hús aðallega verið notuð í afmörkuðum verkefnum, til dæmis sem félagslegt búsetuúrræði fyrir fólk í húsnæðisvanda. Hins vegar liggur ekki fyrir heildstæð greining á því hvernig smáhýsi falla að íslensku skipulags-, regluverks- og leyfisumhverfi, né hvaða hlutverki þau geta gegnt í húsnæðismálum í brothættum byggðarlögum. Markmið rannsóknarinnar er því að skoða hvernig smáhýsi geta nýst sem úrræði í brothættum byggðarlögum á Íslandi og hvaða þættir í skipulagi, regluverki og stjórnsýslu hafa áhrif á möguleika slíkra lausna.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ásrún Óskarsdóttir 1987-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53708
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53708