Back to search

Agricultural University of Iceland

Að draga lífið úr sjó, fyrr og nú- Möguleikar baðupplifunar við Knarrarósvita

Abstract

dc:description.abstract

Hafið hefur um aldir verið undirstaða lífsviðurværis á Íslandi, þar sem fólk dró lífið úr sjónum í bókstaflegri merkingu við krefjandi aðstæður. Tengsl manns og sjávar hafa þó tekið breytingum með tímanum og í dag sækir fólk í auknum mæli í hafið sem vettvang útivistar og endurheimtar. Verkefnið byggir á fræðilegri umfjöllun um tengsl manns og náttúru, skynræna upplifun, endurheimt og staðaranda. Sérstök áhersla er lögð á hlutverk vatns í upplifun. Einnig er horft er til fyrirmynda þar sem unnið er með náttúrulegar aðstæður á hófstilltan hátt, með það að markmiði að styrkja tengsl manns og staðar. Markmið verkefnisins er að kanna möguleika á þróun baðupplifunar við Knarrarósvita á suðurströnd Íslands, með áherslu á náttúrulegar aðstæður og staðaranda. Niðurstöður benda til þess að aðstæður svæðisins setji skýr mörk fyrir hversu umfangsmikil uppbygging getur átt sér stað og að styrkur felist fremur í ósnortnu landslagi, víðáttu og tengslum við hafið. Verkefnið varpar þannig ljósi á mikilvægi þess að hönnun taki mið af sérstöðu staðar og sýnir að upplifun geti falist í því að vinna með það sem þegar er til staðar, heldur en að bæta við nýjum inngripum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Oddný Ása Ingjaldsdóttir 1988-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53696
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53696

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Oddný Ása Ingjaldsdóttir 1988-. Að draga lífið úr sjó, fyrr og nú- Möguleikar baðupplifunar við Knarrarósvita. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53696