Back to search

Agricultural University of Iceland

Algild hönnun á grunnskólalóðum í Reykjavík: Mat á aðgengi og hönnunartillögur

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessa verkefnis er að leggja mat á aðgengi á grunnskólalóðum í Reykjavík út frá hugmyndafræði algildrar hönnunar og móta hönnunartillögur sem stuðla að öruggu og inngildandi skólaumhverfi fyrir alla notendur. Til grundvallar liggja vettvangsathuganir á fimm skólalóðum, Breiðholtsskóla, Dalskóla, Vesturbæjarskóla, Laugarnesskóla og Klettaskóla sem valdar voru með hliðsjón af aldri, stærð og þjónustuhlutverki. Lóðirnar voru greindar eftir matskvarða sem byggður var á viðmiðum Reykjavíkurborgar (2025) og ÖBÍ réttindasamtaka og skiptist í sex meginflokka: Aðkomu og rötun, stíga og yfirborð, sjónrænt aðgengi, leiksvæði og búnað, svæðaskiptingu og skynáreiti og dvalarsvæði. Niðurstöðurnar voru síðan settar í samhengi við starfsáætlanir skólanna sjálfra og alþjóðlegar mannréttindaskuldbindingar. Niðurstöður greiningarinnar sýna að lóðirnar standast viðmið algildrar hönnunar í mjög ólíkum mæli. Dalskóli, sem byggður var frá grunni á tímum þegar vitund um aðgengi hafði þegar náð inn í íslenska hönnunarumræðu, sker sig úr með heildareinkunnina 14 af 18, en Laugarnesskóli, sem fær einkunnina „Ekki til staðar” í aðkomu vegna einnar sérleiðar fyrir hreyfihamlaða, fær heildareinkunnina 7. Sjónrænt aðgengi reyndist veikasti flokkurinn yfir alla rannsóknina og kom á óvart að jafnvel Klettaskóli, sem er sérskóli, sýnir sömu kerfisvilluna og almennir skólar. Samanburður milli starfsáætlana skólanna og raunverulegra niðurstaðna leiddi í ljós áberandi bil milli yfirlýstrar stefnu og hönnunar á lóðunum. Verkefnið skilar bæði fræðilegum grunni og hagnýtum hönnunartillögum sem byggjast á sex flokkum matskvarðans ásamt forgangsverkefnum fyrir hverja af lóðunum fimm. Niðurstöðurnar benda til þess að hugmyndafræði algildrar hönnunar sé til staðar í íslenskri hönnunarumræðu og í skólastefnum borgarinnar en að innleiðingu hennar í raunverulegri hönnun lóðanna sé verulega ábótavant, bæði á eldri lóðum, nýjum og endurgerðum og jafnvel á sérskóla. Til að brúa þetta bil þarf bæði kerfisbundna eftirfylgni borgarinnar með hönnunarleiðbeiningum sínum og markvissa þjálfun hönnuða um algilda hönnun. Lykilorð: algild hönnun, aðgengi, grunnskólalóðir, inngilding, leiksvæði, landslagsarkitektúr

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Nína Berglind Sigtryggsdóttir 2001-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53695
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53695

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Nína Berglind Sigtryggsdóttir 2001-. Algild hönnun á grunnskólalóðum í Reykjavík: Mat á aðgengi og hönnunartillögur. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53695