Agricultural University of Iceland
Almenningarðar á Selfoss - Að breyta túni í garði.
Abstract
dc:description.abstractÍ náminu mínu á Hvanneyri hafa augu mín opnast fyrir mikilvægi grænna svæða fyrir fólk, einkum í þéttbýli. Ég er búsett á Selfossi og vitaskuld hef ég hugleitt hvernig þessum málum sé háttað þar, þá einkum hvernig almenningsgarðar eru og virka í bænum. Þessi ritgerð fer yfir hlutverk almenningsgarða og tengsl þeirra við lýðheilsu og staðaranda. Farið er yfir hvernig almenningsgarðar eru flokkaðir út frá staðsetningu, aðgengi og upplifun sem boðið er upp á í hverjum þeirra ásamt því að skoða hvernig notkun þeirra er og hvernig þeir þjóna þörfum íbúa. Stiklað er á stóru um hvata að þróun garða á norðurlöndum og fjallað um dæmi í því sambandi. Til að setja efnið í íslenskt samhengi er fjallað stutt um þróun almenningsgarða hérlendis og þá tveir garðar skoðaðir, höfuðdjásnin á versurlandi og norðurlandi; Skallagrímsgarður í Borgarnesi og Listigarðurinn á Akureyri. Síðan er sjónum beint að tveimur görðum á Selfossi; Sigtúnsgarði og Tryggvagarði, og þeir bornir saman út frá staðsetningu og upplifun sem þeir bjóða upp og að lokum lagðar fram hönnunarskissur fyrir hugsanlega framtíðarþróun á Sigtúnsgarði Ljóst er að Selfoss hefur alla burði til að skapa aðlaðandi Almenningsgarð þar sem Sigtúnsgarður er í dag, í raun að „breyta túni í garð“. Staðsetningin er frábær, rétt við miðbæinn og rýmið nægt til að þróa hann á þann hátt að hann þjóni nútímasamfélagi sem griðarstaður og aðlaðandi útivistarsvæð.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Anna Lind Friðriksdóttir 1985-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53682
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53682