Back to search

Agricultural University of Iceland

Endurhönnun tjaldsvæðisins á Akranesi. Upplifun, skipulag og tengsl við náttúru

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er fjallað um endurhönnun tjaldsvæðis við Kalmansvík á Akranesi með áherslu á upplifun, skipulag og tengsl við náttúru. Markmið verkefnisins er að þróa hönnunartillögu sem bætir notagildi svæðisins og styrkir tengsl gesta við náttúru og umhverfi, með hliðsjón af náttúrulegum og menningarsögulegum eiginleikum þess. Verkefnið byggir á fræðilegri umfjöllun um áhrif náttúru á líðan og hegðun, hlutverk blárra svæða, staðaranda og ferðavenjur, auk þess sem atferli tjaldsvæðisgesta og mikilvægi blágrænna ofanvatnslausna eru skoðuð. Jafnframt eru greind fordæmi sem varpa ljósi á mismunandi nálganir í hönnun tjaldsvæða og útivistarsvæða. Í framhaldi er gerð greining á Kalmansvík þar sem fjallað er um landslag, lífríki, veðurfar, fornleifar og núverandi aðstæður svæðisins. Niðurstöður greiningarinnar sýna að svæðið býr yfir miklum gæðum en einnig ákveðnum áskorunum, meðal annars tengdum frárennsli, skipulagi og aðgengi. Að lokum er sett fram hönnunartillaga sem byggir á niðurstöðum greiningar og fræðilegrar umfjöllunar. Tillagan leggur áherslu á skýrt skipulag, bætta yfirborðsmeðferð, aukið aðgengi og styrkingu tengsla við náttúru og staðaranda. Markmiðið er að skapa aðlagandi og sjálfbært tjaldsvæði sem mætir þörfum ólíkra notendahópa, eykur gæði upplifunar gesta og nýtir sérstöðu svæðisins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Alexandra Ósk Reynisdóttir 2004-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 9

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53681
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/53681

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Alexandra Ósk Reynisdóttir 2004-. Endurhönnun tjaldsvæðisins á Akranesi. Upplifun, skipulag og tengsl við náttúru. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53681