Abstract
dc:description.abstractRitgerðin fjallar um möguleika smærri sveitarfélaga til að innleiða blágrænar ofanvatnslausnir (BGO) í mótað landslag og hvernig slíkar lausnir geta stutt við sjálfbæra þróun sveitarfélagsins. Blágrænar lausnir fela í sér náttúruvænar aðferðir til að meðhöndla ofanvatn, þar sem vatni er beint út í gegndræp svæði, græn beð og lautir, í stað þess að það renni óhreinsað í fráveitukerfi. Tilviksrannsóknin beinist að Grundarfirði, sveitarfélagi sem hefur sett sér markmið í aðalskipulagi að nýta BGO sem lykilþátt í fráveitulausnum. Þar hefur aukin tíðni ofsaúrkomu skapað álag á eldri fráveitukerfi, og því er þörf á hagkvæmum og sjálfbærum úrbótum. Rannsóknin leitast við að svara hvaða BGO lausnir geta hentað á svæði Ölkeldu sem er sambland af eldri byggð og þéttingu innan hennar. Skoðað er hvaða plöntutegundir geta stutt við virkni BGO kerfanna og hvort nýta megi plöntuleifar í hringrásarhagkerfi sveitarfélagsins, til dæmis sem lífrænan áburð. Erlendar fyrirmyndir frá Middelfart í Danmörku og Łódź í Póllandi sýna hvernig samþætting grænna lausna og borgarþróunar getur stuðlað að vistvænni og aðlaðandi byggð. Gert er ítarlegt greiningarferli á svæðinu við Ölkeldu í Grundarfirði, nefnt Paimpol-garðurinn og staðaranda þess. Þarfir samfélagsins eru metnar með tiliti til Kenninga Jan Gehl um mannlíf milli húsa. Niðurstaðan úr því greiningarferli er svo sett fram í myndrænni hönnunartillögu fyrir svæðið, sem sýnir hvernig BGO lausnir geta verið samþættar í þéttingu byggðar og endurbótum á fráveitu. Tillagan tekur mið af 3gja stiga skiptingu á úrkomu og lausnir eru útfærðar á mismunandi stigum, allt frá yfirborðsgegndræpum flötum til stærri regnbeða og tímabundinna söfnunarstaða vatns við ofsaúrkomu. Niðurstöðurnar sýna að BGO séu æskilegur kostur fyrir smærri sveitarfélög, en vel þarf að huga að jarðvegsgæðum og viðhaldi svæðisins. Plöntuval hefur mikið að segja um virkni kerfanna, og plöntuleifar geta sannarlega skapað hringrásargildi. Ritgerðin leggur til að smærri sveitarfélög nýti BGO sem leið til að auka seiglu gagnvart loftslagsbreytingum, draga úr kostnaði við hefðbundin fráveitukerfi og skapa samfélagslegan og umhverfislegan virðisauka. Hún getur þannig nýst sem vísir að skapalóni að innleiðingu BGO lausna í sambærilegum sveitarfélögum á Íslandi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Helga Sigurðardóttir 1981-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 9Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/51485
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/51485