Agricultural University of Iceland
Samband uppgefins og mælds mjólkurflæðis hjá fjórum tegundum mjaltaþjóna á Íslandi
Abstract
dc:description.abstractÍ kynbótamati kúa eru nokkrir eiginleikar metnir, einn af þeim eru mjaltir. Í ræktun íslenska kúakynsins er markmiðið að velja kýr sem mjólka jafnt og hratt, en draga úr mismjöltum. Á búum sem nota mjaltaþjóna er stuðst við viðmiðunartöflu um mjólkurflæði til að ákvarða einkunnina. Markmið þessa verkefnis var að kanna hvernig mælingar hjá mismunandi tegundum mjaltaþjóna raðast á línulegan einkunnakvarða og hvort þörf sé á að endurmeta kvarðann fyrir einhverjar þeirra. Mjaltaþjónategundir eru fjórar hér á landi eins og er. Farið var á fimm bú með hverri mjaltaþjónategund og teknar mælingar á 10 gripum á hverjum stað. Að lokum var þá búið að heimsækja 20 bú og safna 200 mælingum. Samband á milli samanburðamælinga voru missterkar hjá mjaltaþjónunum sem sýndi að þörf gæti verið á að endurskoða línulega einkunnaskalann fyrir suma mjaltaþjóna svo kýr úr mismunandi mjaltaþjóna fjósum fái sambærilega einkunn fyrir sama mjókurflæði.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Vilborg Eva Guðmundsdóttir 2000-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/50564
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/50564