Agricultural University of Iceland
Náttúruperlan Kjarnaskógur - Greining á þáttum sem stuðla að vinsældum útivistarsvæða
Abstract
dc:description.abstractSumir staðir hafa þann eiginleika að laða að fólk til útivistar án þess að það sé vitað af hverju það er og hvaða hópum staðir eru að þjóna í þessum tilgangi. Kjarnaskógur á Akureyri er einn þessara staða. Markmið verkefnisins er að kortleggja einkenni Kjarnaskógar sem útivistarsvæði, svara því hverjir sækja skóginn og í hvaða tilgangi. Í verkefninu er leitast við að svara því hvaða þættir gera útivistarsvæði vinsæl og hvað það er sem laðar fólk að. Til að svara þessu verður farið í greiningu á útivistarsvæðinu Kjarnarskógi sem almennt nýtur mikilla vinsælda. Notast verður við mismunandi aðferðir við nálgun á greiningavinnunni og farið eftir ákveðnum lykilþáttum (m.a. kenningu um val á umhverfi eftir Kaplan hjónin og 8 upplifunarsvæðum Patriks Grahn) fyrir það hvað gerir almenningssvæði góð. Greiningin og útskýringar eru settar fram á myndrænan hátt sem er ætlað að einfalda skilning á efninu. Verkefnið veitir innsýn í hvernig útivistarsvæði geta haft áhrif á upplifun og heilsu fólks. Niðurstöðurnar geta nýst við skipulag og þróun framtíðar útivistarsvæða á Íslandi með það að markmiði að skapa umhverfi sem stuðlar að vellíðan, afslöppun og dýpri tengingu við náttúruna.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Maríanna Ósk Mikaelsdóttir 1999-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/50558
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/50558