Abstract
dc:description.abstractÞað er mikil ábyrgð fólgin í því að hafa umsjón með útivistarskógum borgarinnar og þeim svæðum sem þeim tengjast. Sú ábyrgð felst fyrst og fremst í að tryggja góða umhirðu, að gróður fái að dafna og aðgengi að svæðunum sé gott. En ábyrgðin nær líka til þess að fræða fólk og kynna hvað þessi svæði hafa upp á að bjóða. Það er sannarlega forréttindi að sinna þessu starfi að veita borgarbúum þjónustu sem getur haft jákvæð áhrif á líðan þeirra, bæði andlega og líkamlega. Markmiðið er alltaf að skapa ný svæði sem hvetja fleiri til að nýta sér skógana. Í framtíðinni er von til þess að við Íslendingar mótum með okkur svipaðar hefðir í skógarnotkun og sjá má hjá nágrannaþjóðum okkar. Vonandi verða skógar og önnur náttúruleg útivistarsvæði hluti af heilbrigðiskerfinu okkar í framtíðinni þó það gæti virst fjarlægur draumur. En með frekari rannsóknum og aukinni vitund getur þessi þróun orðið raunveruleiki, þar sem skógarnir hjálpa fólki að takast á við hraðan lífsstíl og áskoranir nútímans. Í þessari rannsókn er skoðað hvort hægt sé að yfirfæra svokallaða PSD-flokka úr eldri rannsókn yfir á svæði í Elliðaárdal og móta þar rými sem kalla fram ákveðna upplifun. Svæðunum var skipt í aðalsvæði, undirsvæði og rými, og notuð voru myndvinnsluforrit til að sýna bæði upprunalega mynd svæðanna og breytta útgáfu. Þannig var hægt að bera saman mismunandi upplifanir. Niðurstöðurnar sýna að þessi aðferðafræði getur verið gagnleg til að sjá fyrir sér hvernig einstök svæði gætu þróast. Hins vegar er þörf á frekari tilraunum, m.a. með því að útbúa fleiri svæði, setja upp teljara og leggja fyrir spurningalista – til að meta raunveruleg áhrif á borgarbúa.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hallgrímur Jón Hallgrímsson 1976-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/50555
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/50555