Back to search

Agricultural University of Iceland

Útbreiðsla birkis (Betula pubescens) í Bæjarstaðarskógi

Abstract

dc:description.abstract

Bæjarstaðarskógur er náttúrlegur birkiskógur staðsetur á Suðausturlandi. Hann er einstakur á Íslandi þar sem beint, hávaxið birki vex þar í miklu magni, sem er sjaldgæft í íslenskum birkiskógum. Skógurinn hefur verið friðaður síðan árið 1935 og var þá girtur af til að vernda hann gegn beit. Eftir það hefur hann breiðst út og þést verulega. Bæjarstaðarskógur hefur mikið verndar og vísindalegt gildi þar sem hann gefur innsýn í náttúrlegan þroskaferil og útbreiðslu íslensks birkis án mikilla áhrifa frá beit eða ræktun. Markmið þessarar ritgerðar var að skoða útbreiðslu Bæjarstaðarskógar yfir tíma og rúm með því að nýta eldri loftmyndir og greiningartól í forritinu ArcGIS Pro. Með því að teikna fláka yfir skógarútbreiðslu á mismunandi tímabilum og bera saman stærðir þeirra, er hægt að meta hvernig skógurinn hefur vaxið og þróast í gegnum tíðina. Annað markmið var að lýsa þeim breytingum sem verða á byggingu skógarins með aldri. Til þess voru lagðir út tólf mælifletir í misgömlum hlutum skógarins sem mældir voru með aðferðum hefðbundna skógmælinga, og borkjarnar teknir út yfirhæðartrjám til aldurgreininga með talningu árhringina í þeim. Saga Bæjarstaðarskógar er mótuð af umhverfisþáttum og mannlegum áhrifum í gegnum aldirnar. Mikil beit var á svæðinu áður fyrr, sem hafði neikvæð áhrif á endurnýjun skógarins. Árið 1935 var svæðið friðað og girt af, sem markaði tímamót í verndun hans og hefur líklega stuðlað að endurvexti og útbreiðslu hans í seinni tíð

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðmundur Freyr Kristjánsson 1975-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50553
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/50553

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðmundur Freyr Kristjánsson 1975-. Útbreiðsla birkis (Betula pubescens) í Bæjarstaðarskógi. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50553