Back to search

Agricultural University of Iceland

Greining á skráðum upplýsingum úr nýskógræktarverkefnum

Abstract

dc:description.abstract

Mikið gagnasafn úr íslenskum nýskógræktarverkefnum er geymt í gagnagrunni Lands og skógar en úrvinnsla á þeim upplýsingum er skammt á veg komin. Í þessari ritgerð er unnið úr hluta þessara upplýsinga með samanburði á vali trjátegunda í upphaflegum ræktunaráætlunum og upplýsinum í framkvæmdaskráningu verkefna. Jafnframt var reynt að komast að mögulegum ástæðum fyrir vali annarra tegunda en áætlað var í upphafi og hvort munur væri á milli landshluta að því leyti. Einnig var skoðað hvernig megintrjátegundirnar í íslenskri skógrækt eru áætlaðar í mismunandi landgerðir miðað við gögn um ráðgjöf í ræktunaráætlunum. Í verkefninu voru töluleg gögn úr gagnagrunninum greind í ArcGIS Pro 3.4.0 og unnið með gögnin í Excel. Rætt var við skógræktarráðgjafa í öllum landshluta sem lögðu mat sitt á niðurstöðurnar og veittu upplýsingar og ábendingar. Yfirleitt var góð samsvörun á milli ræktunaráætlana og framkvæmdaskráninga, en frávik komu þó víða fram. Ræktunaráætlunum var síst fylgt þar sem alaskaösp hafði verið áætluð. Það sem gæti skýrt misræmi á milli ræktunaráætlunar og framkvæmdaskráningu er skortur á framboði valinna tegunda, ónákvæmni við upphaflega greiningu á landgerð og áætlaðs nærviðris, ásamt ýmsum tæknilegum og mannlegum þáttum. Niðurstöðurnar fyrir val trjátegunda eftir landgerðum sýna að stafafuru, ilmbjörk og rússalerki er valinn staður í rýrari jarðvegi en sitkagreni og alaskaösp. Greiningin sýnir vel að ræktunaráætlanir eru og eiga að vera lifandi plagg sem getur tekið breytingum á framkvæmdatímanum. Áætlanir geta mótast af einstaklingsbundnu mati en þurfa alltaf á endanum að taka tillit til annara þátta, eins og plöntuframboðs, óvæntra aðstæðna og álits landeigenda og annarra skógræktarráðgjafa. Líkur eru á því að greining skráðra upplýsinga úr nýskógræktarverkefnum muni nýtast vel til að bæta skógræktarráðgjöf.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ásdís Björk Friðgeirsdóttir 1974-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 11

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50551
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/50551

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ásdís Björk Friðgeirsdóttir 1974-. Greining á skráðum upplýsingum úr nýskógræktarverkefnum. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50551