Back to search

Agricultural University of Iceland

Viðarmagnsáætlun, grisjunaráætlun og samanburður við fjarkönnunargögn

Abstract

dc:description.abstract

Skógmælingar eru forsenda þess að hægt sé að gera umhirðu- og viðarmagnsáætlanir fyrir skóga. Mikilvægt er að huga að fjölda mælireita og ákvarða úrtakshlutfall í samræmi við breytileika skógarreitanna sem mæla á. Notkun fjarkönnunar til skógmælinga sparar tíma og kostnað en krefst þó ýmissa upplýsinga sem afla verður á jörðu niðri. Ýmis gögn fást úr fjarkönnun sem ekki fást með hefðbundnum skógmælingum. Ákveðnar takmarkanir eru þó til staðar við notkun fjarkönnunar þar sem erfitt getur reynst að mynda þétta skógarreiti og vanmat á fjölda trjáa getur átt sér stað. Með aukinni þróun og notkun tækninnar má þó reikna með að nákvæmari niðurstöður fáist. Töluverður munur var á niðurstöðum úr hefðbundnum skógmælingum og fjarkönnun á mældum reitum í verkefninu. Líklega var bæði um ofmat að ræða í hefðbundnu skógmælingunum og vanmat úr fjarkönnun. Umhirða í útivistarskógum tekur tillit til annarra þátta en í hefðbundinni timburskógrækt. Síþekjuskógrækt og misþétt grisjun er talin henta ágætlega fyrir útivistarskógrækt þar sem verið er að líkja eftir náttúrulegum skógum. Með misþéttri grisjun má skapa fjölbreyttari skóga og meira aðlaðandi, sem er lykilatriði þegar kemur að útivistarskógum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gísli Guðlaugsson 1989-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50550
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/50550

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gísli Guðlaugsson 1989-. Viðarmagnsáætlun, grisjunaráætlun og samanburður við fjarkönnunargögn. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50550