Back to search

Agricultural University of Iceland

Búsetuóskir og val á ferðamáta – Ákvörðun um flutning til þéttbýlisstaða í jaðri vinnusóknarsvæðis höfuðborgarsvæðisins í tilviki Selfoss

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerðin fjallar um hvernig búsetuóskir og val á ferðamáta hafa áhrif á ákvörðun fólks um að flytja frá höfuðborgarsvæðinu til nærliggjandi þéttbýlisstaða innan vinnusóknarsvæðis þess. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvaða búsetuóskir skipta mestu máli við ákvörðun um flutning og hvernig val á ferðamáta til og frá vinnu hefur áhrif á þá ákvörðun. Byggt var á fræðilegum viðmiðum úr rannsóknum í Norður-Evrópu um efnahagslega, félagslega og samgöngutengda þætti, auk búsetugæða. Þessi viðmið voru sett fram til að kanna hvort þau ættu við í íslensku samhengi með Selfoss sem tilvik rannsóknarinnar. Leitast var við að svara því að hvaða marki búsetuóskir hafa áhrif á flutninga til þéttbýlisstaða í jaðri vinnusóknar-svæðis höfuðborgarsvæðisins á Íslandi og hvernig þær tengjast ferðamöguleikum til og frá vinnu. Spurningakönnun var lögð fyrir nýaðflutta íbúa Selfoss, sem flutt höfðu frá höfuðborgar¬svæðinu á árunum 2020 til 2024, auk þess sem tekin voru viðtöl við valda íbúa til að fá dýpri innsýn í viðhorf þeirra. Niðurstöður sýna að búsetuóskir um sérbýli, einkagarð og rólegt og fjölskylduvænt umhverfi voru meginástæður flutnings. Margir íbúar voru tilbúnir til að sætta sig við lengri ferðatíma á einkabíl til vinnu á höfuðborgarsvæðinu til að uppfylla þessar óskir og einfalda daglegt líf fjölskyldunnar. Almenningssamgöngur voru almennt ekki taldar raunhæfur valkostur til vinnuferða vegna takmarkaðs aðgengis, langs ferðatíma og lítillar tíðni. Rannsóknin varpar ljósi á hvernig mismunandi persónulegar óskir og kerfislægir þættir móta búsetuóskir og val á ferðamáta íbúa á jaðri vinnusóknarsvæðisins. Hún undirstrikar mikilvægi þess að stefnumótun í skipulags- og samgöngumálum á Íslandi taki mið af fjölbreyttum búsetuóskum og ólíkum þörfum íbúa, ef ætlunin er að draga úr útþenslu byggðar, álagi á vegakerfi og stuðla að sjálfbærri þróun byggðar með vistvænum ferðamátum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Margrét Þóra Sæmundsdóttir 2001-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50487
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/50487

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Margrét Þóra Sæmundsdóttir 2001-. Búsetuóskir og val á ferðamáta – Ákvörðun um flutning til þéttbýlisstaða í jaðri vinnusóknarsvæðis höfuðborgarsvæðisins í tilviki Selfoss. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50487