Back to search

Agricultural University of Iceland

Jarðvegur og kolefnisbinding greniskógar 50 árum eftir gróðursetningu á graslendi

Abstract

dc:description.abstract

Víða um heim er unnið að mótvægisaðgerðum gegn loftslagsbreytingum með því að auka kolefnisbindingu og með því ná til baka hluta af því CO2 sem losaður hefur verið út í andrúmsloftið með bruna jarðefnaeldsneytis og skógareyðingu. Nýskógrækt er ein af þeim aðgerðum sem beitt er til að binda kolefni. Nýlega hafa verið settar fram tilgátur hér á landi um að nýskógrækt á graslendi geti mögulega leitt til minnkunar á kolefnisforða vegna neikvæðra áhrifa á kolefnisforða jarðvegs. Hafa þessar tilgátur byggt á ákveðnum erlendum rannsóknum sem hafa sumar sýnt að kolefnisforði jarðvegs getur mögulega minnkað eða að minnsta kosti ekki aukist í kjölfar nýskógræktar á graslendi. Hér á landi hafa einungis birst tvær rannsóknir á breytingum á heildar kolefnisforða vistkerfisins í kjölfar nýskógræktar á graslendi. Markmið þessarar rannsóknar var að meta breytingar á jarðvegsbyggingu, jarðvegsefnafræði og kolefnisforðum ofan- og neðanjarðar 50 árum eftir að sitkagreniræktun hófst á graslendi á Reykjum í Ölfusi. Til samanburðar var notað nærliggjandi óbeitt graslendi og einungis horft til efstu 10 cm jarðvegsins. Helstu niðurstöður voru að það var enginn marktækur munur á rúmþyngd né N% milli landgerðanna, en bæði C/N hlutfall og C% í jarðveginum hækkaði marktækt. Einnig súrnaði yfirborðslag jarðvegsins marktækt í kjölfar nýskógræktarinnar, en náði ekki niður fyrir pH 5 sem er það stig sem viðkvæmustu jarðvegslífverur fara að hljóta skaða af. Heildarkolefnisforði í öllu vistkerfinu var marktækt mun meiri í skóginum og munaði þar mest um aukningu í kolefnisforða í lífmassa ofan- og neðanjarðar, en heildarmagn í jarðvegi jókst einnig marktækt í skóginum. Meðal árleg binding á CO2 í öllu skógarvistkerfinu nam 9,7 t CO2/ha á ári og þar af nam meðal árleg binding í neðanjarðar lífmassa og lífrænu efni í efstu 10 cm jarðvegsins 2,7 t CO2/ha á ári. Það er annmarki á þessari rannsókn að hún náði einungis niður á 10 cm dýpi í steinefnajarðvegi. Gera þarf fleiri rannsóknir á nýskógrækt á graslendi, þar sem mælingar á kolefnisforðum vistkerfisins ná lengra niður í jarðvegsniðin.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Narfi Hjartarson 1977-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/47737
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/47737

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Narfi Hjartarson 1977-. Jarðvegur og kolefnisbinding greniskógar 50 árum eftir gróðursetningu á graslendi. 2024. http://hdl.handle.net/1946/47737