Agricultural University of Iceland
Brúin á Skeiðarársandi og önnur sérstæð útivistarsvæði
Abstract
dc:description.abstractAflögð samgöngumannvirki má finna víða og er ekki algengt að þau fái ný hlutverk. Nokkur þekkt dæmi eru þó um slíkt og má finna þau víða um heim. The High Line í New York eru gamlir lestarteinar sem fengið hafa nýtt hlutverk í dag sem útivistarsvæði sem liggur eftir gömlu lestarteinunum á miðri Manhattan. Promenade Plantée eru gamlir lestarteinar í miðri Parísarborg sem þjóna núna sem göngu- og útivistarsvæði fyrir íbúa stórborgarinnar. Verslun og þjónusta hefur einnig blómstrað undir gömlu lestarteinunum sem voru byggðir á upphækkun fyrir ofan götur borgarinnar. Fyrrverandi alþjóðaflugvöllurinn í Berlínarborg, Tempelhof, er í dag nýttur sem stórt útivistarsvæði í miðri Berlín. Flugbrautir og akvegir hafa fengið að halda sér og eru í dag nýttir til útivistar af ýmsu tagi þar sem nóg pláss er fyrir alla þá sem þangað koma. Á Íslandi eru ekki aflagðir lestarteinar eða flugvellir til að breyta í útivistarsvæði en við eigum merkilegt mannvirki sem fyrir ekki svo mörgum árum gjörbreytti samgöngum á landinu, en það er Skeiðarárbrú sem núna hefur lokið hlutverki sínu. Breytingar á loftslagi og bráðnun jökla hafa orðið til þess að þessi lengsta brú landsins stendur nú á þurru og getur ef til vill fengið önnur not í framtíðinni. Þessi erlendu dæmi um óvenjuleg útivistarsvæði verða skoðuð ásamt því að kanna sögu og notkunarmöguleika Skeiðarárbrúar til framtíðar með það að markmiði að brúin öðlist nýtt líf.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Halldór Jón Björgvinsson 1977-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/47568
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/47568