Agricultural University of Iceland
Ferðafrelsi og umhverfi barna: Áhrif þéttingar byggðar á umhverfi barna í Reykjavík og frelsi þeirra til að njóta umhverfisgæða síns nærumhverfis
Abstract
dc:description.abstractÁform Reykjavíkurborgar og annarra sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins um þéttingu byggðar marka eina mestu stefnubreytingu í sögu byggðarþróunar á Íslandi. Áhrif þéttingar byggðar á börn og umhverfi þeirra geta verið margskonar, ýmist jákvæð eða neikvæð, en vegna skorts á rannsóknum, gögnum og umræðu um áhrif stefnunnar á börn er erfitt að segja til um hvort hún sé þeim í hag eða ekki — og eru börn meðal viðkvæmustu hópanna innan borga. Markmið þessa verkefnis er að rannsaka og greina hver áhrif þéttingar byggðar eru á umhverfi barna í Reykjavík og frelsi þeirra til þess að njóta umhverfisgæða síns nærumhverfis. Í ritgerðinni er farið yfir réttindi og þarfir barna, Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sænska aðferðafræði um áhrifagreiningu í þágu barna, stefnur Reykjavíkurborgar tengdar hagsmunum barna og þau umhverfisgæði sem börn þurfa á að halda til þess að njóta farsæls þroska ásamt þeim sem nú þegar eru til staðar. Þessi atriði eru höfð til hliðsjónar við greiningar tveggja ólíkra hverfa í Reykjavík, Seljahverfis og nýja Skerjafjarðar, sem fara að miklu leyti fram með vinnslu landfræðilegra gagna í formi kerfagreininga gönguleiða (e. network analysis) og samanburði á jafntímasvæðum. Þrátt fyrir að sérstök aðferðafræði við áhrifagreiningu í þágu barna hafi ekki verið innleidd á Íslandi eru nýi Skerjafjörður og Seljahverfi dæmi um vel lukkuð hverfi, hvað réttindi, þarfir, ferðafrelsi og umhverfi barna varðar. Þó þarf að hafa í huga að víðtækum og fjölbreyttum áhrifum þéttingar byggðar munar á milli hverfa og því mikilvægt að nálgast áhrifagreingingu í þágu barna með kerfisbundnum hætti til þess að tryggja að frekari byggðarþróun komi ekki til með að hafa neikvæð áhrif á börn.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Arnar Þórsson 1995-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 9Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/47522
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/47522