Back to search

Agricultural University of Iceland

Notkun tildurmosa til mælinga á þungmálmum

Abstract

dc:description.abstract

Þungmálmar eru náttúruleg frumefni sem má finna í öllum vistkerfum við mismunandi styrk. Þeir myndast í umhverfinu á náttúrulegan hátt en einnig geta þeir orðið til af mannavöldum. Margir þungmálmar á borð við járn, kopar og sínk eru nauðsynlegir fyrir eðlilega lífsstarfsemi en þegar styrkur þungmálmanna fer yfir ákveðin mörk verða þeir hins vegar eitraðir. Aðrir þungmálmar eru hættulegir í litlum styrk og getur neysla þeirra haft verulegar og neikvæðar afleiðingar á neytandann ef þeirra er neytt. Aukin umhverfisvitund og skilningur á þungmálmum ásamt sífellt strangari reglugerðum um mengunarvarnir hafa haft mikil áhrif á skilning okkar á skaðsemi þungmálmamengunar. Vegna eðlis þungmálma og þeirra skaðlegu áhrifa sem þeir geta haft er mikilvægt að koma í veg fyrir þungmálmamengun og er vöktun styrkleika þungmálma í umhverfinu mikilvægur hluti þess. Hraðar og nákvæmar mælingar eru því mikilvægar til að koma í veg fyrir útbreiðslu mengunarinnar. Í þessari ritgerð er gerð grein fyrir hinar ýmsu aðferðir sem eru notaðar við mælingar þungmálma. Viðfangsefni þessarar ritgerðar er að greina þá aðferð að notast við tildurmosa við mælingar á þungmálmum í umhverfinu. Tildurmosi, eðli hans og útbreiðsla ásamt því hvernig hann er notaður við mælingar á þungmálum er yfirfarið og leitast er við að svara því hvort að tildurmosi sé heppilegur til mælinga á þungmálmum til lengdar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Valdís Sólrún Antonsdóttir 1994-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/47520
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/47520

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Valdís Sólrún Antonsdóttir 1994-. Notkun tildurmosa til mælinga á þungmálmum. 2024. http://hdl.handle.net/1946/47520