Back to search

Agricultural University of Iceland

Eðliseiginleikar jarðvegsins á skriðusvæðum Seyðisfjarðar

Abstract

dc:description.abstract

Rannsóknir á eðliseiginleikum jarðvegs á Íslandi eru fremur takmarkaðar, ekki síst á þeim er lúta að samloðun moldarinnar. Þó er þær mikilvægt sökum þess að hér á landi er eldfjallajarðvegur sem er þekktur fyrir að vera vatnsheldinn með lága þjálnitölu og litla samloðun. Í þessari rannsókn var athygli beint að skriðunum á Seyðisfirði 2020 og voru sýni tekin skömmu eftir skriðufallið. Vatnsinnihald jarðvegsins við mismunandi vatnsspennu var ákvarðað sem og vatnsrýmd. Þá voru flæðumörk, þjálnimörk og þjálnitala jarðvegsins ákvörðuð. Svörin við rannsóknarspurningunum sem settar voru fram gefa vísbendingu um eðli skriðuefnanna, áhrif mikillar úrkomu á svæði eins og Seyðisfjörð og þá geta svörin hjálpað til við að meta hættuna sem getur stafað af eldfjallajarðvegi í miklum bratta. Rannsóknin sýndi að mikið vatn reyndist vera í jarðveginum skömmu eftir að skriðan féll og var vatnsinnihald sýnanna allt upp í 87%. Hluti af jarðveginum var silt og innihélt það mun minna vatn eða um eða undir 10%. Vatnsinnihald við mismunandi spennu sýndi að vatnsrýmd sýnanna var töluverð eða allt upp í 61% en vatnsrýmd siltsins var töluvert minni eða í kringum 10%. Við skoðun á flæðimarki og þjálnimarki sást nokkuð dæmigerð hegðun silts og eldfjallajarðvegs en þjálnitala sýnanna var í öllum tilfellum í kringum núll. Leirmoldin getur þó tekið mun meira vatn í sig en siltið. Rannsaka þarf þennan þátt jarðvegsins mun betur þegar kemur að skriðuföllum svo hægt sé að meta betur hættuna sem stafar af lítilli samloðun eldfjallajarðvegs og ákveða mótvægisaðgerðir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gunnar Gunnarsson 1973-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/47517
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/47517

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gunnar Gunnarsson 1973-. Eðliseiginleikar jarðvegsins á skriðusvæðum Seyðisfjarðar. 2024. http://hdl.handle.net/1946/47517