Agricultural University of Iceland
Samanburður á gróðurfari í Skúmey og á landi vestan við Jökulsárlón
Abstract
dc:description.abstractBreiðamerkurjökull hóf að hopa við lok litlu-ísaldar um 1890 en á síðustu áratugum hefur hraði hopunar hans aukist hratt. Eftir því sem jökullinn hopar stækkar Breiðamerkursandur og á því landi sem kemur undan jökli fer í gang frumframvinda gróðurs. Auk Breiðamerkursands kom eyja undan jöklinum í vestanverðu Jökulsárlóni rétt fyrir aldamótin 2000 sem fékk nafnið Skúmey, staðsett aðeins um 200 m frá fastalandi. Þrátt fyrir nálægðina eru umhverfisaðstæður um margt ólíkar milli sandsins og eyjunnar. Í þessari rannsókn var gróðurfar á Breiðamerkursandi rannsakað, þ.e. þekja æðplantna auk mosa, flétta og lífrænnar jarðvegsskánar ásamt því að allar æðplöntutegundir voru greindar. Þær niðurstöður voru síðan bornar saman við gróðurmælingar sem gerðar voru í Skúmey árið 2017. Rannsóknarreitirnir voru fjórir á hvoru svæði og voru staðsettir á mismunandi aldursbeltum frá árunum 1970–1998. Heildargróðurþekja á Breiðamerkursandi var talsvert meiri en í Skúmey og átti þekja mosa mestan þátt í þeim mismun á milli svæðanna. Það má ef til vill rekja til þess að mosar þrífast gjarnan betur þar sem gott aðgengi er að raka en jarðvegurinn í rannsóknarreitunum á Breiðamerkursandi virtist vera rakameiri en í Skúmey. Einnig er mikið og misþétt helsingjavarp í eynni og því talsvert beitarálag. Úrvinnsla gagna leiddi þó í fáum tilvikum af sér marktækan mun milli svæðanna, sem gæti stafað af litlum fjölda rannsóknarreita. Þessi rannsókn gefur þó innsýn inn í þann mun sem virðist vera á gróðurframvindu þessara svæða og hve mikil áhrif beit helsingja getur haft á gróðurfar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Björk Sigurjónsdóttir 1994-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/47516
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/47516