Back to search

Agricultural University of Iceland

Þróun og skipulag í Stekkjarlundi og Veiðilundi í landi Miðfells

Abstract

dc:description.abstract

Verkefnið fjallar um þróun og skipulag í sumarbústaðalandi Miðfells, nánar tiltekið í Stekkjar- og Veiðilundi. Markmiðið er að bera saman sumarhús út frá einkennum, þróun, stærð og staðsetningu sumarhúsa á lóð. Athugað verður hvort elstu sumarhúsin á svæðinu séu fyrirmyndir þeirra sem á eftir koma. Auk þess að skoða hvort náttúran sem landið er í hafi áhrif á það hvar sumarhúsin eru staðsett á lóðunum þ.e. innra skipulag. Kenningar Caniggia og Conzens í borgarformfræði eru skoðaðar og leitast er eftir að færa þær yfir í sumarbústaðabyggð. Til grundvallar þessa verkefnis liggur aðferð Sigríðar Kristjánsdóttur sem hún bjó til og notar í Ph.D. ritgerð sinni. Búið er til sniðmát sem sýnir ljósmynd af hverju sumarhúsi, loftmynd af svæðinu, loftmynd af sumarhúsinu og nánasta umhverfi og einnig loftmynd sem sýnir sumarhúsið í meiri nærmynd. Að lokum er svo grunnteikning af sumarhúsinu og upplýsingar um stærð hússins, stærð lóðar og byggingarár. Með sniðmátinu er svo hægt að lesa út þær upplýsingar sem gefa niðurstöðuna. Miðfellslandið er ekki mjög hefðbundið, sumarhúsin eru mjög fjölbreytt og byggð upp á löngu tímabili. Niðurstöðurnar sýna að skipulagið á svæðinu hefur ráðist af náttúrufarslegum aðstæðum. Auk þess leiddi rannsóknin í ljós að ráðandi formgerð húsa á svæðinu hefur þróast og að þar eru einnig formgerðir sem hvorki tengjast fyrri húsum né eru upphafspunktur að nýrri þróun.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sólveig Helga Jóhannsdóttir 1982-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/4571
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/4571

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sólveig Helga Jóhannsdóttir 1982-. Þróun og skipulag í Stekkjarlundi og Veiðilundi í landi Miðfells. 2010. http://hdl.handle.net/1946/4571