Back to search

Agricultural University of Iceland

Jarðvegur og landnýting á Hrafntóftum í Rangárþingi ytra

Abstract

dc:description.abstract

Landnýting á Hrafntóftum er sérstök að því leyti að þar eru ræktaðar túnþökur. Í þessu verkefni verður leitast við að kanna áhrif túnþökuræktunar á jarðveginn. Því miður eru ekki til gamlar mælingar af svæðinu til að bera niðurstöðurnar saman við. Í staðinn var notast við mælingar af öðrum svæðum sem aðrir hafa gert og það sem talin eru eðlileg gildi. Mælingar voru gerðar á nokkrum jarðvegsþáttum eins og sýrustigi, rúmþyngd, glæðitapi og leysanlegum næringarefnum. Einnig voru áhrif þjöppunar metin með holustærðarmælingum. Helstu niðurstöður voru að þjöppun vegna umferðar getur verið mikil, rúmþyngd mældist há miðað við jarðvegsgerð en glæðitap lágt og fosfór mældist í mjög lágum styrk. Út frá þessum niðurstöðum má álykta sem svo að sá fosfór sem berst í landið með áburði sé að miklu leyti fjarlægður með túnþökunum en einnig getur jarðvegurinn bundið mikið magn fosfórs vegna þess hversu járnríkur hann er. Greinilegt er að landið hefur orðið fyrir miklu áfoki steinefna sérstaklega eftir landnám. Það sést á breytingum á rúmþyngd og glæðitapi við öskulag sem féll við landnám. Þetta mikla áfok hefur leitt til hækkunar á sýrustigi og aukinnar frjósemi jarðvegsins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jóhannes Már Gylfason 1982-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/4546
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/4546

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jóhannes Már Gylfason 1982-. Jarðvegur og landnýting á Hrafntóftum í Rangárþingi ytra. 2010. http://hdl.handle.net/1946/4546