Back to search

Agricultural University of Iceland

Breytileiki landnýtingar og jarðvegs á framræstu landi á Vesturlandi

Abstract

dc:description.abstract

Þær jarðvegsgerðir sem einkum einkenna gróin landbúnaðarsvæði hér á landi eru mójörð, svartjörð, votjörð og brúnjörð. Þessar jarðvegsgerðir innihalda mikinn forða af kolefni. Við framræslu fer af stað rotnun í mýrajarðvegi og þá losna úr mónum koltvísýringur, steinefni og köfnunarefni. Ísland er aðili að Loftslagsamningi Sameinuðu þjóðanna, með honum skuldbindum við okkur m.a. til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og veita upplýsingar um þessa losun. LBHÍ tekur saman upplýsingar um losun vegna landnýtingar (LULUCF), en framræsla er hluti af því. Veruleg losun GHL getur átt sér stað úr framræstu landi en losun þeirra er háð þáttum eins og landnýtingu og magni kolefnis í jarðvegi. Til að meta losun GHL vantar upplýsingar um hlutfall skurða sem liggja um land með lífrænum jarðvegi annars vegar og hinsvegar upplýsingar um breytileika landnýtingar á framræstu landi. Verkefnið mun afla gagna til að bæta bókhald Íslands til Loftslagssamnings SÞ hvað varðar landnýtingu og losun GHL úr framræstu landi. Sýnastaðir voru fundnir með aðstoð landupplýsingakerfisins GIS. Jarðvegs- sýnataka fór fram á Vesturlandi þar sem upplýsingum var m.a. safnað um landnýtingu. Jarðvegssýnin voru síðan greind fyrir C og N, auk þess sem að sýni með undir 12% í C voru sett í oxalat-skolun. Rannsóknin leiddi í ljós að framræsta landið er að langmestu leiti nýtt til úthaga. 86% af jarðveginum reyndist lífrænn (>12%C), og alls höfðu sex jarðvegsgerðir verið ræstar fram, mójörð var í yfir 70% tilvika hin framræsta jarðvegsgerð. Breytileiki í C:N hlutfalli milli jarðvegsgerða leiddi í ljós að því kolefnisríkari sem jarðvegurinn var því hærri reyndist hlutfallið. Ef litið er á breytileika C:N eftir landnýtingu má sjá að úthaginn hefur hærra hlutfall en ræktað land.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jónína Svavarsdóttir 1985-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/4543
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/4543

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jónína Svavarsdóttir 1985-. Breytileiki landnýtingar og jarðvegs á framræstu landi á Vesturlandi. 2010. http://hdl.handle.net/1946/4543