Back to search

Agricultural University of Iceland

Skiptibeit hrossa og sauðfjár

Abstract

dc:description.abstract

Áhugi manna á láglendisbeit sauðfjár hefur farið vaxandi. Kemur þar til aukin krafa um að minnka hálendisbeit, einkum vegna róðurverndarsjónarmiða. Einnig hafa komið til hagkvæmnisjónarmið þar sem fækkun sauðfjár á afréttum veldur erfiðleikum við smölun, og eiga margir bændur í raun engan annan kost en að beita lambfé sínu á láglendi yfir sumarið. Vandamálið er hins vegar það að láglendisbeit hefur almennt gefið verri dilka en beit á hálendi. Markmið rannsóknarinnar sem hér er greint frá var að kanna áhrif forbeitar hrossa á framræstri láglendismýri á vöxt og þrif lamba sem beitt var á endurvöxtinn. Forbeitinni var ætlað að kalla fram endurvöxt plantnanna í beitarhólfunum, sem notuð voru undir rannsóknina, og líkja þannig eftir hálendisbeit þar sem sífellt framboð er á nýgræðingi. Valdar voru 40 tvílembdar ær með lömbum af sambærilegum fæðingarþunga frátilraunabúi Landbúnaðarháskóla Íslands á Hesti. Ánum var skipt í tvo hópa, fór annar hópurinn í skiptibeit og samanburðahópur var rekin á afrétt. Skiptibeitin fór fram á Hvanneyri ,, suður í landi“ og stóð frá 15. júní fram til 28. ágúst 2007, þegar lömbin voru sett á beit á áborinni há á Hesti í 5 vikur fram að slátrun. Samanburðarhópurinn gekk á fjalli frá 15. júlí til 14. september og var síðan settur á háarbeit á Hesti í tvær vikur. Lömbunum var síðan öllum slátrað 2.október 2007. Niðurstöðurnar sýndu ómarktækan mun á lífþunga milli skiptibeitarhrútanna og samanburðarhrútanna. Hinsvegar var marktækur munur á fallþunga og kjötprósentu (p<0.05), þar sem dilkar hrúta í skiptibeitinn flokkuðust verr en úr samanburðarhópnum. Niðurstöður úr ómmælingunum sýndu mjög marktækan mun á milli hópanna, hjá bæði hrútum og gimbrum. Gimbrarnar í tilraunahópnum flokkuðust mun betur í dilka en gimbrarnar í samanburðarhópnum og ekki var marktækur munur á lífþunga, fallþunga og kjötprósentu á milli gimbra hópanna. Niðurstöður þessar benda til þess að skiptibeit með hrossum sé raunhæf leið til að auka gæði dilka á láglendisbeit.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Silja Sigurðardóttir 1983-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/4539
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/4539

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Silja Sigurðardóttir 1983-. Skiptibeit hrossa og sauðfjár. 2010. http://hdl.handle.net/1946/4539