Back to search

Agricultural University of Iceland

Breytileiki jarðvegs í gróðurlendum Skorradals

Abstract

dc:description.abstract

Í þessu verkefni er greint frá rannsókn sem var gerð á völdum jarðvegsþáttum í Skorradal, Borgarfirði, sumarið 2021. Svæðið er að mestum hluta mólendi sem hefur verið friðað fyrir beit frá árinu 2005. Þar er gamall birkiskógur og skógrækt sem hefur verið stunduð frá 7. áratug síðustu aldar. Rannsóknarsvæðið býður upp á að skoða hvernig jarðvegseiginleikar breytast með hæð í Vatnshornshlíð, þar sem áður var birkiskógur, svo og út frá jöðrum gamals birkiskógar og nýrri skógræktar þar sem aðfluttar tegundir voru gróðursettar í birkikjarr. Þarna eru kjör aðstæður til að skoða hvernig eiginleikar jarðvegs gamals birkiskógar viðhaldast í kjölfar rasks. Mesta athygli vakti hversu hátt kolefnishlutfall jarðvegs er í mólendinu og jafnvel hærra en gerist í brúnjörð mólendis almennt. Líklegasta skýringin er sú að áhrif birkiskógarins sem var þar áður sé enn til staðar. Landnám birkis hafði aftur á móti ekki bætt jarðvegsgæði, enda skammt síðan það nam land og áhrif þess varla farin að sjást. Í öllum tilvikum uxu birkiplönturnar í virku rofi og voru enn smáar. Erfitt er að segja hvort beitarfriðun síðastliðin 15 ár í Vatnhornshlíð sé farin að hafa áhrif á jarðveg. Beitarfriðun hefur að öllum líkindum haft fljótt áhrif á gróðurhulu en svörun jarðvegs er hægari. Minnsti styrkur kolefni og niturs (%) var í sniðum sem liggja næst bænum Vatnshorni. Það gæti verið að áhrif beitardýra út frá bænum séu enn til staðar. Þetta var skoðað með tilliti til raskátta (e. piosphere) sem voru skoðaðar út frá loftmynd. Þegar kolefnismagn á 0-10 sm dýpt í birkiskóginum (snið 1) var borið saman við sniðin næst skóginum (snið 2 og 3), sýndi tölfræðipróf að meiri líkindi voru á kolefnismagni milli sniða 1 og 2 en sniða 1 og 3. Almennt lækkaði hlutfall C/N með auknu dýpi, sem getur bent til þess að jarðvegurinn sé að hnigna hraðar í efri lögum jarðvegsins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Berglind Guðjónsdóttir 1975-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/44846
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/44846

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Berglind Guðjónsdóttir 1975-. Breytileiki jarðvegs í gróðurlendum Skorradals. 2023. http://hdl.handle.net/1946/44846