Back to search

Agricultural University of Iceland

Þyrluskíðun: Áhrif á umhverfi, efnahag og samfélag í Fjallabyggð

Abstract

dc:description.abstract

Innan ævintýraferðamennskunnar er þyrluskíðamennska sú grein sem er með hraðasta vöxtinn og stækkar greinin á hverju ári. Tröllaskaginn hefur komist á heimskortið yfir eftirsótta staði til þess að stunda þyrluskíðun og hefur Fjallabyggð að geyma eftirsótta fjallgarða sem að þyrluskíðafólkið sækist oft í. Þar sem að atvinnugreinin er sífellt að stækka er tímabært að kanna þau áhrif sem fylgja henni. Með eigindlegum rannsóknum voru könnuð umhverfisleg, efnahagsleg og samfélagsleg áhrif þyrluskíðamennskunnar á Fjallabyggð. Rannsóknin byggir á viðtölum við rekstraraðila og aðra aðila sem verða fyrir áhrifum af atvinnugreininni. Niðurstöður benda til þess að þyrluskíðun hafi fært samfélaginu bæði ávinning og áskoranir. Það jákvæða er að hún skapar atvinnutækifæri, eykur tekjur fyrir önnur þjónustufyrirtæki og aukið orðspor samfélagsins sem áfangastað fyrir ævintýraferðamennsku. Það neikvæða er að þyrluskíðamennska veldur hávaðamengun, loftmengun og árekstrum við aðra sem að nýta sér fjöllin og náttúruna. Í ljósi þessara niðurstaðna er bent á nokkrar tillögur til að bæta sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð þyrluskíðagreinarinnar, svo sem að taka upp umhverfisstefnu, styðja við verkefni í samfélaginu og hafa frumkvæði og koma af stað vettvangi til reglubundinna samskipta. Þyrluskíðamennska getur þó verið dýrmæt atvinnustarfsemi fyrir lítil samfélög, en það krefst vandaðrar skipulagningar, eftirlits og þátttöku samfélagsins til að tryggja að ávinningi hennar sé skipt á réttlátan hátt og að áhrif hennar séu sem minnst.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Bryndís Guðjónsdóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/44845
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/44845

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Bryndís Guðjónsdóttir 1989-. Þyrluskíðun: Áhrif á umhverfi, efnahag og samfélag í Fjallabyggð. 2023. http://hdl.handle.net/1946/44845