Back to search

Agricultural University of Iceland

Áhrif Jóns H. Björnssonar á landslagsarkitektúr á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Með verkefninu verður varpað ljósi á námsferil, afköst, hugsmíði og lífshlaup Jóns H. Björnssonar, fyrsta faglærða landslagsarkitekts Íslands. Hann var frumkvöðull á mörgum sviðum í garðrækt og starfaði sem slíkur í yfir fimmtíu ár. Jón byrjaði að starfa sem landslagsarkitekt árið 1953 en það ár flutti hann aftur heim til Íslands eftir að hafa stundað nám í New York. Á þessum tíma voru Íslendingar á eftir í hugmyndasmíði og framkvæmdum varðandi skipulag og hönnun garða en garðplöntuval var af skornum skammti ef miða á gróðurval við önnur lönd. Með því hugarafli sem einkenndi Jón lagði hann í för til Alaska árið 1952 með það að markmiði að safna fræjum og græðlingum sem hann síðar gerði heimildarmynd um. Hugmyndin kviknaði þegar Jón var í námi og ferðin var stór hluti af því sem hann átti eftir að afreka seinna meir. Jón stofnaði gróðrarstöðina Alaska, sem var umfangsmesta gróðrarstöðin á landinu um áratuga skeið. Megin markmið hans með stofnun gróðrarstöðvarinnar var að auka fjölbreytni í gróðurnotkun hér á landi. Því miður var Jón óheppinn því að eftir páskahretið í apríl árið 1963 varð Jón fyrir miklu fjárhagslegu tjóni þegar megnið af gróðri sem hann átti í uppeldi í gróðrarstöðinni frusu og urðu einskis nýtar. Hann leigði þá frá sér gróðrarstöðina, snéri sér að framhaldsskólakennslu og aflaði sér kennsluréttinda. Fjallað verður um garða sem Jón hannaði, tillaga að nýsköpun varðandi endurgerð Hallargarðsins að sínum upprunalega stíl sem og hönnunartillögu þar sem dregin eru fram einkenni Jóns í hönnun.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Elva Dögg Sverrisdóttir 1976-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 9

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/44817
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/44817

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Elva Dögg Sverrisdóttir 1976-. Áhrif Jóns H. Björnssonar á landslagsarkitektúr á Íslandi. 2023. http://hdl.handle.net/1946/44817