Back to search

Agricultural University of Iceland

Samanburður á kjúklingafóðri með og án bætiefna

Abstract

dc:description.abstract

Alifuglar fylgdu landnámsmönnum til Íslands og voru afurðir fuglana mikilvægur hluti af fæðu þeirra. Síðar dró mikið úr alifuglarækt hér á landi vegna erfiðra aðstæðna en búgreinin náði sér aftur á strik á 20.öld. Um miðja 20.öld hófst ræktun á holdakjúklingum sem hefur aukist hratt síðan og er alifuglakjöt mest framleidda kjöt á Íslandi í dag. Stærsti kostnaðarliður alifuglaræktar er fóðurkostnaður, sem er sérstaklega hár hérlendis þar sem stór hluti hráefna er innflutt. Í fóðrið eru notuð bætiefni sem eiga að bæta árangur en þau eru dýr. Fóðurbætiefni eiga að bæta árangur alifuglaræktunar á ýmsu vegu með því að bæta vöxt, fóðurnýtingu og draga úr bakteríusmitum, dritbruna og afföllum. Þess vegna er markmið þessarar tilraunar að skoða hvort munur sé á árangri með notkun bætiefna í fóðri eða án. Tilraunin var framkvæmd á Hjalla í Ölfusi þar sem tveir holdakjúklinga hópar voru bornir saman, annar hópurinn fékk fóður með bætiefnunum Poultry Star og Biotronic top 3 (hópur 1) en hinn hópurinn fékk fóður án bætiefna (hópur 2). Samanburður var gerður á dritbruna, fóðurnýtingu, afföllum, vexti/sláturþyngd og bakteríusmitum. Niðurstöðurnar sýndu lítinn mun í afföllum og engin smit komu í hópana. Munur var á vexti þar sem hópur 2 varð að meðaltali þyngri en hópur 1. Fóðurnýting var betri hjá hópi 2. Stærsti munurinn var á dritbruna þar sem hópur 1 var með mun meiri dritbruna heldur en hópur 2. Út frá þessum niðurstöðum er hægt að álykta að fóðurbætiefnin réttlæti ekki kostnað en það eru fleiri þættir sem hafa áhrif á þessa liði og úrtakið í tilrauninni er lítið og þyrfti fleiri endurtekningar til að fá marktæka niðurstöðu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigurjón Már Kristinsson 1997-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 10

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/44790
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/44790

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigurjón Már Kristinsson 1997-. Samanburður á kjúklingafóðri með og án bætiefna. 2023. http://hdl.handle.net/1946/44790