Back to search

Agricultural University of Iceland

Samanburður á ull af feldfjár lömbum og annarri lambsull

Abstract

dc:description.abstract

Gotlandsfé er fyrirmynd að feldfé á Íslandi og við ræktunarmarkmið á bæði Gotlandsfé og feldfé er mesta áherslan lögð á feldeiginleika þar sem aðalafurðin er gæran og því miðast kynbætur við það. Feldfé er grátt fé sem á að hafa jafnt og gljáandi hárafar, litur ullar verður að vera sem jafnastur og hárin leggist í hæfilega stóra lokka. Upp úr 1980 byrjaði gráu fé að fjölga í landinu vegna þess að verð á gráum gærum hækkaði talsvert í Svíþjóð og víðar og voru íslenskar gærur sendar út til Svíþjóðar um árabil. Ekki stóðust gráu íslensku gærurnar þó samkeppnina við gráu gærurnar af Gotlandsfénu og minnkaði þá áhugi bænda á ræktun á feldfé. Það voru þó nokkrir bændur sem héldu ræktuninni áfram og síðan þá hafa feldfjár hrútar verið í boði á sæðingarstöðvum. Talið hefur verið að feldfé sé með mýkri ull en venjulegt fé en engar rannsóknir hafa verið gerðar sem hafa sýnt fram á það. Í þessari rannsókn verður gerður samanburður á ull á feldfjár lömbum og venjulegum lömbum og athugað hvort mun megi sjá þar á milli. Farið var á 9 bæi og safnað var ullarsýnum bæði af feldfjár lömbum og venjulegum lömbum. Þær upplýsingar sem fengust fyrir hvert lamb var, lambsnúmer, þungi, aldur, bæjanúmer, hópur og litur. Ullarsýni voru send til Bretlands til ullarmælinga og með ullarmælingunum voru fengnar niðurstöður um hvort munur væri á ull af feldfjár lömbum og venjulegum lömbum. Í niðurstöðunum kom í ljós að ekki var marktækur munur á ullareiginleikum milli hópa en meðaltal fyrir meðalþvermál hjá feldfjár lömbum var 31,7 μm og 32,7 μm hjá venjulegum lömbum. Feldfjár lömb hafa þó almennt jafnara hárafar en venjuleg lömb en meiri breytileika mátti sjá á ullinni hjá venjulegu lömbunum. Þungaáhrif voru að sjá hjá feldfjár lömbum en ekki venjulegum lömbum. Einnig sýndu niðurstöðurnar að erfðamunur gæti verið til staðar á ullareiginleikum milli hópa og milli bæja. Niðurstöður úr þessari rannsókn eru nokkuð samsvarandi við eldri rannsóknir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ragnheiður Árnadóttir 1998-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/44779
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/44779

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ragnheiður Árnadóttir 1998-. Samanburður á ull af feldfjár lömbum og annarri lambsull. 2023. http://hdl.handle.net/1946/44779