Back to search

Agricultural University of Iceland

Áhrif fóðrunar og aðbúnaðar á lifun fleirlembinga

Abstract

dc:description.abstract

Helsta markmið þessa verkefnis er að minnka fósturdauða hjá fleirlembum og kanna hvernig fóðrun og aðbúnaður hafi áhrif á lifun fleirlembinga. Þau gögn sem voru notuð við gerð þessa verkefnis voru erlendar heimildir, þar sem skoðað var hvernig fóðruninni er háttað og hvað talið sé að valdi vanhöldum lamba. Einnig voru sendar spurningar á 18 bændur dreift um landið og skoðað hlutfall lifandi fleirlembinga og hvort samhengi sé á milli fóðrunar og lifunar. Sérstaklega skoðaði ég hvort bændurnir væru að taka fleirlemburnar sér eftir talningu og fóðra þær á annan hátt eða gera betur við þær. Niðurstöður sýndu að 12 bæir fóðra fleirlemburnar sér og eru þeir að meðaltali með 90,5% lifandi fleirlembinga. 8 bæir fóðra fleirlemburnar ekki sér og eru þeir með 92,9% lifandi fleirlembinga að meðaltali. Af þessum 18 bæjum voru 2 sem fóðra hluta til sér og hluta til saman með hinum. Að þekkja holdastig ánna getur verið algjört lykilatriði svo hægt sé að fóðra þær sem réttast. Komið hefur í ljós að þær ær sem eru í lélegum holdum eru tengdar við hærri tíðni dauðfæddra lamba og lægri lifunartíðni lamba. Ær sem eru aftur á móti í of miklum holdum geta haft neikvæð áhrif á frjósemina og valdið burðarerfiðleikum á vorin.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Stella Dröfn Bjarnadóttir 1997-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/44774
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/44774

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Stella Dröfn Bjarnadóttir 1997-. Áhrif fóðrunar og aðbúnaðar á lifun fleirlembinga. 2023. http://hdl.handle.net/1946/44774