Back to search

Agricultural University of Iceland

Greining á Selfossi út frá skipulagshugmyndinni um 20 mínútna bæinn Kortlagning svæða eftir aðgengi að þjónustu í GIS og tillögur að skipulagi

Abstract

dc:description.abstract

Módernískt skipulag með bílmiðuðum ákvörðunum hefur verið einkennandi á Íslandi frá því um miðbik 20. aldar og hefur skilið eftir sig einhæf hverfi og dreifða byggð. Samgöngur eiga mikinn þátt í losun gróðurhúsalofttegunda og þar með hlýnun jarðar. Á síðustu árum eru alvarlegar afleiðingar loftslagsbreytinga orðnar augljósar og samfélagið verður að aðlagast, svo skaðinn verði sem minnstur. Tækifærin liggja í ferðamátabreytingum til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Með því að hanna lifandi bæjarrými með áherslu á gönguvænni þar sem er stutt frá heimili í þjónustu, almenningssamgöngur og útivistarsvæði verður dregið úr akstursþörf. Skipulagshugmyndin og stefna um 20 mínútna bæinn kemur með tillögur um hvernig hið byggða umhverfi ætti að vera til að auka hlutdeild gangandi og hjólandi á Íslandi. Viðfangsefni rannsóknarinnar er að greina Selfoss út frá hugmyndinni, sérstaklega með tilliti til göngufjarlægðar að verslun og þjónustu. Aðgengi íbúa er kortlagt í GIS með netgreiningu og tillagan að aðalskipulagi fyrir Árborg borin saman við markmiðin úr tillögunni að landsskipulagsstefnu. Einnig var framkvæmd skoðanakönnun meðal íbúa á Selfossi varðandi ferðahegðun. Helsti ávinningurinn af þessari rannsókn eru tillögur fyrir sveitarfélagið Árborg um atriði sem ættu að gegna lykilhlutverki í skipulagi. Eftirfarandi skref voru nauðsynleg framlög til að þróa tillögurnar: a) túlkun á hugmyndinni um 20 mínútna bæinn og útfærsla hennar fyrir Selfoss, b) greining á dreifingu núverandi þjónustu og aðgengi íbúa, c) auðkenning á svæðum sem þarfnast betri skipulagningar, d) tillögur að staðsetningu á nýjum þjónustukjörnum, e) greining á þáttum sem ógna markmiðinu og f) greining á þörfum íbúa. Helstu niðurstöður eru þær að 45% Selfossbúa hafa takmarkaðan aðgang að þjónustu innan 10 mínútna göngufjarlægðar og 20% hafa einungis aðgengi að um helmingi af þjónustutegundunum. Þetta þýðir að ganga er oftast ekki raunhæfur ferðamáti, sem dregur úr sjálfstæði ýmissa hópa í samfélaginu. Mikil íbúafjölgun á stuttum tíma, uppbygging nýja miðbæjarins á Selfossi og tilfærsla hringvegarins eru áskoranir sem sveitarfélagið Árborg þarf að takast á við. Niðurstöðurnar úr rannsókninni geta hjálpað sveitarfélaginu að átta sig á helstu framkvæmdaatriðum til að gera Selfoss að gönguvænni bæ.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Anne Steinbrenner 1979-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 9

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/43380
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/43380

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Anne Steinbrenner 1979-. Greining á Selfossi út frá skipulagshugmyndinni um 20 mínútna bæinn Kortlagning svæða eftir aðgengi að þjónustu í GIS og tillögur að skipulagi. 2023. http://hdl.handle.net/1946/43380