Back to search

Agricultural University of Iceland

Breytingar á sýrustigi í jarðvegi barrskóga

Abstract

dc:description.abstract

Rannsóknir á sýrustigi jarðvegs í barrskógum eru fremur fáar á Íslandi og lítið er vitað um hver áhrif nýskógræktar með barrviðum eru á sýrustig í jarðvegi hérlendis. Þær takmörkuðu rannsóknir sem fyrir hendi eru leiða í ljós ólíkar niðurstöður um áhrif barrskóga á sýrustig jarðvegs. Rannsóknir erlendis sýna að barrskógar geta lækkað sýrustig jarðvegs. Lækkun sýrustigs er talið til neikvæðra og oft varanlegra umhverfisáhrifa, þar sem frjósemi jarðvegs minnkar vegna minna aðgengis að mörgum næringarefnum, auk þess sem jarðvegsgerðin tekur að breytast. Áfok frá uppfokssvæðum hefur áhrif á sýrustig þar sem áfokið er basískt og losar um katjónir sem viðhalda hærra sýrustigi jarðvegsins, meðal annars með því að taka jónrýmdarsætin í stað súrra jóna á borð við H+ og Al3+. Hærra sýrustig eykur ennfremur á stuðpúðaeiginleika jarðvegsins. Eftir því sem fjær dregur frá uppfokssvæðum gætir minni áhrifa af áfoki. Á svæðum líkt og á Vestfjörðum, þar sem áfok er lítið, er sýrustig með því lægsta sem finnst á Íslandi. Í þessari ritgerð verður fjallað um sýrustig í jarðvegi sjö barrskóga á Íslandi, þar af eru fjórir á Vestfjörðum. Skógarnir eru allir um 40-70 ára gamlir. Tekin voru jarðvegssýni innan skóga og utan þeirra til að skoða hvort breyting hafi átt sér stað á sýrustigi við gróðursetningu barrtrjáa. Niðurstöður sýna marktæka lækkun á sýrustigi í skóginum í Skarðsdal (Wilcoxon Rank Sum Test) og tölfræðipróf (Nested Anova) leiðir enn fremur í ljós marktæk áhrif landgerða (barrskógur vs. mói) á sýrustigið. Breytileiki á sýrustigi jarðvegsins innan barrskóganna á öllum rannsóknarsvæðum er talsvert meiri en utan skóganna sem bendir til þess að sýrustig sé tekið að breytast frá náttúrulegu ástandi. Mikilvægt er að auka rannsóknir á umhverfisáhrifum nýskógræktar vegna áætlana um umfangsmikla plöntun barrviða á Íslandi og þá ekki síst á sýrustig jarðvegs.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Freyja Ragnarsdóttir Pedersen 1998-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/43254
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/43254

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Freyja Ragnarsdóttir Pedersen 1998-. Breytingar á sýrustigi í jarðvegi barrskóga. 2023. http://hdl.handle.net/1946/43254