Agricultural University of Iceland
Samspil sauðfjárbeitar, umhverfisþátta, tegundasamsetningar og fjölbreytni mólendisplantna
Abstract
dc:description.abstractVegna hlýnandi veðurfars, umsvifa mannsins og breyttrar landnotkunar eiga sér stað umtalsverðar breytingar í náttúrunni víða um heim. Útbreiðslumörk tegunda færast á hærri breiddargráður og hærra yfir sjávarmál. Nauðsynlegt er að umhverfið sé vaktað og reynt að greina umfang breytinga, orsakir og afleiðingar. Í þessari rannsókn var tegundasamsetning og tegundafjölbreytni mólendisplantna rannsökuð með tilliti til sauðfjarbeitar. Borin voru saman beitt og óbeitt svæði í úthaga milli 220 og 320 m hæðarlína í Eyjafirði. Óbeitta svæðið hefur verið friðað fyrir sauðfjárbeit í 43 ár og beitta svæðið hefur verið léttbeitt síðustu 2-3 áratugi. Þrjátíu línusnið, 5 m löng og tilviljunarkennt valin, voru rannsökuð á hvoru svæði og þversnið af þekju tegunda mæld. Jafnframt var hæð yfir sjávarmáli mæld. Einnig voru jarðvegssýni tekin á hverju sniði og efnaeiginleikar efstu 15 sm jarðvegs undir grasrót rannsakaðir. Ekki greindist marktækur munur á heildarþekju, tegungdaauðgi, tegundajafnræði og tegundafjölbreytni mólendisplantna á milli friðaðs og beitts svæðis. Tegundasamsetning svæðanna bar vott um áhrif sauðfjárbeitar. Þekja 7 tegunda var marktækt frábrugðin milli svæðanna og má rekja hluta ástæðunnar til fæðuvals sauðfjár. Þekja smárunna var marktækt meiri á friðuðu en beittu svæði. Þekja plöntutegunda var marktækt breytilegri á beittu svæði. Ekki var munur á sýrustigi, C og N hlutföllum í jarðvegi milli svæðanna. Samkvæmt línulegu aðhvarfi var C/N hlutfall 13,8 á beittu svæði og 16,1 á friðuðu svæði. Marktæk jákvæð fylgni var milli tegundajafnræðis og C- og N- hlutfalla í jarðvegi á samanlögðum svæðum. Marktæk neikvæð fylgni var milli tegundafjölbreytni og C/N hlutfalls á hvoru svæði fyrir sig. Mikilvægt er að endurtaka rannsóknir sem þessa yfir áratugi til að fá skýrari mynd af framvindu breytinga og orsakasamhengi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Brynjólfur Brynjólfsson 1971-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/42966
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/42966