Back to search

Agricultural University of Iceland

Samanburður á vatnsstöðu, jarðvegshita og CO2 öndunar óraskaðrar flóamýrar og framræstrar flóamýrar

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari rannsókn voru gerðar samanburðarmælingar á vatnsstöðu, jarðvegshita og CO2 öndun framræstra og óraskaðra flóamýra. Einnig var leitast eftir að svara spurningunni hvort tími frá framræslu hefði áhrif á kolefnishlutfall jarðvegsins á svæðinu. Svæðið var eitt sinn samfelld óröskuð flóamýri en á árabilinu 1955 til 1977 var hún framræst að hluta og skapaði þar með svæðið sem skiptist í tvennt, óraskaða mýri og framræsta mýri. Mælt var alls á 24 punktum, 12 á hvoru svæði, jarðvegshiti, vatnsstaða og öndun CO2. Jarðvegssýni voru tekin við hvern mælipunkt til að meta hlutfall kolefnis á svæðinu. Niðurstöður mælinga á svæðunum voru bornar saman og þá kom fram verulegur munur á milli þeirra. Annarsvegar var vatnsstaðan mun lægri í framræsta stykkinu og hins vegar var öndun CO2 mun hærri eða frá því að vera tvöfalt meiri og upp í þrefalt meiri þar sem munurinn varð mestur. Hlutfall kolefnis í jarðvegi studdi þessi gögn þar sem minna var af kolefni í framræsta stykkinu, 20% til móts við 27% í óröskuðu mýrinni (25% munur). Þar af leiðandi metum við svo að framræsla hefur áhrif á öndun CO2 úr flóamýri með þeim hætti að lægri vatnsstaða eykur á öndun.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ingólfur Pétursson 1987-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/41637
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/41637

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ingólfur Pétursson 1987-. Samanburður á vatnsstöðu, jarðvegshita og CO2 öndunar óraskaðrar flóamýrar og framræstrar flóamýrar. 2022. http://hdl.handle.net/1946/41637