Back to search

Agricultural University of Iceland

Framvinda þörunga og blábaktería í Andakílsá eftir aurflóð

Abstract

dc:description.abstract

Framvindu er hægt að lýsa sem breytingu á tegundasamsetningu yfir tíma. Fjarlægðin frá nærliggjandi svæðum getur spilað stórt hlutverk fyrir hvaða tegundir nema land hverju sinni. Sólarljós og næring stuðla að aukningu lífmassa þörunga og blábaktería. Rask eins og flóð sem veldur því að þekja þörunga og blábaktería losnar af undirlaginu og getur haft þau áhrif að skyndilegt tap verður á lífmassa þeirra. Dagana 15.–19. maí 2017 barst mikill aurburður í Andakílsá úr inntakslóni Andakílsárvirkjunar. Árbotninn var víðsvegar undir 20–60 cm þykku setlagi sem samanstóð af sandi og smágrjóti en búsvæði vatnalífvera raskaðist mikið við þetta. Þörunga- og blábakteríusýni frá árunum 2017–2020, sem Hafrannsóknastofnun tók, voru notuð til þess að meta framvindu þörunga og blábaktería. Þeir voru greindir í hópa, útlitseinkenni og stærðir. Heildarþéttleiki þörunga og blábaktería jókst jafnt og þétt yfir árin. Kísilþörungar voru alltaf ríkjandi í október, annars voru það blábakteríur eða grænþörungar sem voru ríkjandi í júlí. Keðjulaga grænþörungar og blábakteríur voru ríkjandi útlitstegund, hjá kísilþörungum voru staflaga kísilþörungar alltaf ríkjandi. Litlir kísilþörungar og grænþörungar voru ríkjandi í öllum sýnunum. Framvinda þörunga og blábaktería getur verið tilviljunarkennd og flókin, margir þættir spila inn í þetta ferli sem hefur áhrif á hvernig samfélög þróast. Heildarþéttleiki þörunga virtist aukast á milli ára, sem var í nokkuð góðu samræmi við það heildarmagn blaðgrænu sem Hafrannsóknastofnun mældi á sama tíma. Niðurstöður gefa til kynna að framvinda þörunga og blábaktería sé skjót.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Heiðrún Svala Aronsdóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/41634
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/41634

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Heiðrún Svala Aronsdóttir 1991-. Framvinda þörunga og blábaktería í Andakílsá eftir aurflóð. 2022. http://hdl.handle.net/1946/41634