Back to search

Agricultural University of Iceland

Samspil lóðar og bústaðar. Vistvæn hönnun frístundalóðar í Borgarbyggð

Abstract

dc:description.abstract

Það er draumur margra að eiga frístundahús í fallegu og rólegu umhverfi, geta notið náttúrunnar og gleymt daglegu amstri. Náttúra Íslands er einstök, hún einkennist af víðerni og ósnortinni náttúru. Í sífellt hraðara samfélagi borgarlífsins er enn mikilvægara að komast í rólegt umhverfi, njóta náttúrunnar og slaka á. Frístundahús eru ákjósanlegir staðir til þess. Uppbygging frístundahúsa á Íslandi síðustu ár er mikil og hefur þeim fjölgað um 50% síðustu 15 ár, með tilheyrandi raski á náttúru. Í þessu verkefni mun höfundur skoða hvað þurfi að hafa í huga til að frístundahús falli sem best að náttúrunni og takmarki áhrif á náttúrulegt umhverfi. Litið verður til Noregs til að veita samanburð á þróun frístundabyggða og áhrif þeirra á óspillta náttúru. Þar er mikið landsvæði tekið undir frístundabyggðir og lítið eftir af ósnortinni náttúru. Norðmenn vilja breyta um stefnu í þessum málum þar sem t.d. landnýting, sjálfbærni og þétting frístundahúsa sé mikilvægt að skoða. Höfundur rannsakaði leiðir til að lágmarka áhrif uppbyggingar frístundalóðar á náttúru og lífríki. Litið verður til sjálfbærni í efnisvali og hvernig auka megi líffræðilegan fjölbreytileika og ná endurheimt landsvæða. Áhrif náttúrunnar á heilsu fólks verða einnig skoðuð og hvaða eiginleikar umhverfis séu best til þess fallnir að stuðla að sálfræðilegri endurheimt. Gerð var staðháttagreining á frístundalóð í Borgarfirði og sett fram hönnunartillaga. Markmið hönnunarinnar er að húsin og mannvirkin í kring falli inn í umhverfið og bæti það en ekki öfugt. Viðfangsefnið og aðferðir við greiningu lóðar og hönnun verður hægt að aðlaga að frístundabyggðum um allt land.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Karen Lind Árnadóttir 1979-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/41621
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/41621

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Karen Lind Árnadóttir 1979-. Samspil lóðar og bústaðar. Vistvæn hönnun frístundalóðar í Borgarbyggð. 2022. http://hdl.handle.net/1946/41621