Back to search

Agricultural University of Iceland

Umgjörð sundlauga - Tækifæri til aukinna gæða

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessa verkefnis er að vekja athygli á mikilvægi gæða við sundlaugar og umhverfi þeirra. Fjórar sundlaugar á Suðurlandi eru skoðaðar sem tilviksrannsókn og þær metnar út frá þáttum sem snúa að aðgengi, gróðri og útsýni. Eftirfarandi sundlaugar voru skoðaðar: Skeiðalaug í Skeiða- og Gnúpverjahrepp, Reykholtslaug í Bláskógabyggð, sundlaugin Borg Í Grímsnesi og Laugaskarð í Hveragerði. Farið er yfir niðurstöður rannsókna um mikilvægi gróðurs, til andlegrar endurheimtar, þróun lauga, potta og tengingu við heita vatnið og hverasvæðin og rætt um sérstöðu sundmenningar Íslendinga og mikilvægi sundlaugarinnar í félagslegu samhengi til að stunda hreyfingu, slökun og félagsleg tengsl. Sýnd er tenging við fræði Jan Gehl og rýnt í athafnir fólks s.s. nauðsynlegar, valkvæðar og félagslegar. Þær athafnir hafa lykiláhrif á hvernig rými eru notuð. Þá spilar fagurfræði stóran þátt í aðdráttaraflinu. Að hafa upphitaðar laugar í öllum sveitum er í raun mjög sérstakt og sér íslenskt. Íslendingar alast upp í sundlaugum frá blautu barnsbeini og talað er um að sundlaugarnar hér á Íslandi gegni sama hlutverki og torg erlendis, svæðin þar sem fólk hittist. En umhverfi lauganna er eins misjafnt eins og þær eru margar. Ólík leiktæki eru í boði, en flestar hafa þær hinn vinsæla heita pott sem er eitt aðal aðdráttaraflið. Einnig er farið yfir grænu svæðin sem eru okkur svo mikilvæg og margar rannsóknir hafa sýnt tengsl á milli þeirra og geðheilbrigðis og vellíðunnar. Kannað verður hvernig staða þeirra er á völdum laugum. Athuganir sýndu (sbr. gátlistar) að aldur skipti ekki máli í mati þeirra þátta sem metnir voru. Elsta sundlaugin, Laugaskarð í Hveragerði var afgerandi best (varðandi þá þætti sem athugaðir voru), en Skeiðalaug kom síst út. Í gátlista má greina hverju var ábótavant. Í kjölfarið kemur höfundur með tillögur að viðbótum sem tengjast inn á fjölbreyttari upplifun, þægindi og bætt er inn lífrænum efnivið til að auka líkur á endurheimt, aukinni slökun og næringu sálarinnar. Athyglisvert er að enginn landslagsarkitekt kom að hönnun útisvæða við þessar sundlaugar og einnig má velta fyrir sér hvort mikill gróður í og við Laugaskarð, tengist langri garðyrkjumenningu á svæðinu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ellisif Malmo bjarnadóttir 1969-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 9

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/41618
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/41618

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ellisif Malmo bjarnadóttir 1969-. Umgjörð sundlauga - Tækifæri til aukinna gæða. 2022. http://hdl.handle.net/1946/41618