Back to search

Agricultural University of Iceland

Samanburður á þroskaferli áa eftir því hvort þær eru geldar eða með lambi veturgamlar

Abstract

dc:description.abstract

Á Íslandi hefur verið hleypt til lambgimbra í rúmlega 70 ár, og hefur hlutfall lambgimbra sem er haldið aukist jafnt og þétt í gegnum tíðina. Nokkrar rannsóknir hafa verið framkvæmdar hérlendis til þess að athuga hvaða áhrif það hefur á ær að vera með lambi veturgamlar. Í nýlegum rannsóknum hafa verið skoðuð áhrif þess á þroska, frjósemi og afurðir síðar á ævinni. Markmið þessa verkefnis er hins vegar að varpa ljósi á áhrif þess að ganga með lambi veturgamlar á þroskaferil áa, hvort það sé munur á þroska áa á öðrum vetri og hvenær fullum þroska sé náð. Gögnin sem notuð voru í verkefninu voru fengin frá fjárbúinu á Hesti í Borgarfirði og höfðu þau að geyma upplýsingar um ær á búinu á framleiðsluárunum 2003-2013 og innihélt gagnasafnið 6.770 færslur. Gagnasafnið hafði að geyma upplýsingar um aldur áa í mánuðum, þunga, holdastig og kg per holdastig við þann aldur, flokkun áa miðað við frjósemi og afdrif lamba á fyrsta aldursári og fæðingarár áa. Niðurstöðurnar sýndu að ær sem voru geldar eða kláruðu ekki meðgöngu veturgamlar voru bæði þyngri og holdmeiri á öðru ári en þær sem báru en gengu ekki með lambi eða báru og gengu með lambi veturgamlar. Áhrif þess að eiga og ganga með lambi veturgamlar reyndust vera mest á öðru ári ánna, við og eftir 30 mánaða aldur er munurinn á milli hópa mjög lítill en geldu ærnar voru þó alltaf örlítið þyngri og holdmeiri út ævina. Þá fannst einnig marktækur munur á þunga, holdastigi og kg per holdastigi eftir árgangi ánna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þorgerður Gló Tómasdóttir 1999-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/41613
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/41613

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þorgerður Gló Tómasdóttir 1999-. Samanburður á þroskaferli áa eftir því hvort þær eru geldar eða með lambi veturgamlar. 2022. http://hdl.handle.net/1946/41613