Back to search

Agricultural University of Iceland

Áhrif hita- og sýrustigs mjólkur á vöxt og þroska smákálfa

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessa verkefnis var að skoða áhrif þess að gefa smákálfum kalda mjólk, þ.e mjólk sem stjórnast af umhverfishita, og bera vaxtarhraðann saman við kálfa sem voru fóðraðir á volgri ferskri mjólk. Í heildina voru 28 kálfar sem kláruðu þessa tilraun en eftir skoðun á gögnunum þá voru nýttar niðurstöður frá 27 kálfum. Alls voru fjórir meðferðarhópar sem skiptust niður í tvær lotur þar sem einungis var hægt að hafa tvo meðferðarhópa samtímis. Í lotu 1 fékk annar hópurinn kalda sýrða mjólk (9 kálfar) og hinn kalda ferska mjólk (7 kálfar). Í seinni lotunni var annars vegar hópur fóðraður á volgri ferskri mjólk (6 kálfar) og hins vegar á kaldri ferskri mjólk (6 kálfar). Kálfarnir sem fengu kalda ferska mjólk voru viðmiðunarhópar og því var hægt að bera hinar verkunaraðferðirnar saman við þá hópa. Allir kálfarnir höfðu frjálsan aðgang að mjólk (sem var verkuð á viðeigandi hátt), kjarnfóðri, heyi og vatni allan tilraunatímann (70 dagar). Niðurstöður þessa verkefnis sýndu að kálfar sem voru fóðraðir á kaldri ferskri mjólk yfir sumartímann og fram á haust (lota 2) þyngdust að meðaltali hraðast (862 g/dag að meðaltali). Vaxtarhraði kálfanna sem fengu volga ferska mjólk var næst mestur (782 g á dag). Kálfarnir sem voru fóðraðir á kaldri ferskri mjólk í lotu 1 þyngdust aðeins hægar en þeir sem fengu volga ferska mjólk (779 g á dag að meðaltali). Það var ekki marktækur munur eftir því hvort ferskmjólkurkálfarnir fengu kalda eða volga mjólk. Aftur á móti þá þyngdust kálfarnir sem fengu kalda sýrða mjólk hægast (654 g á dag að meðaltali), það mældist þó aðeins marktækur munur á þeirri meðferð og að fóðra kálfana á kaldri ferskri mjólk í lotu 2. Draga má þá ályktun að það sé vel hægt að ná góðum vaxtarhraða smákálfa með því að fóðra þá á kaldri ferskri mjólk, þá sérstaklega yfir sumartímann þegar umhverfishitinn er hærri. Þessar niðurstöður byggjast á því að kálfamjólkin sé ávallt í góðum gæðum og frjáls aðgangur að henni, kjarnfóðri, heyi og vatni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðfinna Eir Þorleifsdóttir 2001-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/41596
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/41596

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðfinna Eir Þorleifsdóttir 2001-. Áhrif hita- og sýrustigs mjólkur á vöxt og þroska smákálfa. 2022. http://hdl.handle.net/1946/41596