Back to search

Agricultural University of Iceland

Erfðafjölbreytileiki íslenska hrossastofnsins

Abstract

dc:description.abstract

Íslenski hrossastofninn er lokaður erfðahópur og mikilvægt er að varðveita erfðafjölbreytileika hans. Skyldleikarækt hefur verið að aukast í stofninum síðustu áratugi og erfðagrunnur stofnsins er að þrengjast. Í þessu verkefni var markmiðið að skoða þróun í skyldleikarækt í íslenska hrossastofninum yfir ættliðabilið 2011-2020 og að meta virka stofnstærð. Gæði ætternisgagna voru einnig skoðuð ásamt því að skoðað var hvaða forfeður og –mæður áttu mestu erfðahlutdeild í íslenska hrossastofninum í árgöngunum 2010, 2015 og 2020. Þetta var skoðað aðskilið fyrir íslensk hross á Íslandi, í Þýskalandi, Danmörku, Svíþjóð og Noregi. Til að framkvæma þetta voru fengin ætternisgögn úr WorldFeng. Forritið EVA_inbred var notað til að reikna skyldleikaræktarstuðla og PEC5-stuðla allra hrossa í gagnasafninu. EVA reiknar einnig erfðaframlag helstu forfeðra og –mæðra stofnsins fyrir árgangana 2010, 2015 og 2020. Virk stofnstærð var síðan metin út frá aukningu í skyldleikarækt yfir síðastliðið ættliðabil. Niðurstöðurnar leiddu í ljós að meðal skyldleikaræktarstuðull stofnsins hefur hækkað í öllum fimm löndunum sem hér voru skoðuð yfir ættliðabilið 2011-2020 en hann var á bilinu 2,60-3,06% í þessum löndum árið 2020. Virka stofnstærðin hefur minnkað samanborið við fyrri rannsóknir en yfir þetta ættliðabil var hún á bilinu 95-103 einstaklingar á Íslandi, 116-122 í Þýskalandi, 60-62 í Danmörku, 68-69 í Svíþjóð og 84-89 í Noregi. Erfðahlutdeild helstu forfeðra og –mæðra er að hækka sem orsakar ójafnvægi í erfðaframlagi og leiðir til meiri skyldleikaræktunar. Þróun á gæðum ætternisgagna er mjög góð, ætternisskráningar halda áfram að aukast og eru nú lang flestir ættfeður og –mæður íslenskra hrossa þekktir fimm kynslóðir aftur. Stofninn er enn vel yfir viðmiðum um lágmarks virka stofnstærð en æskilegt er engu að síður að ræktendur að taki sig á í því að forðast skyldleikarækt á markvissan hátt og viðhalda þannig þeim erfðafjölbreytileika sem er í íslenska hrossastofninum í dag. Mikilvægt er að auka fræðslu og upplýsingastreymi um þau áhrif sem aukin skyldleikarækt getur haft á íslenska hrossastofninn. Ef þróunin heldur áfram, eins og hún hefur verið að gera síðustu ár, þá verður að grípa til harðari aðgerða.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Elínborg Árnadóttir 2000-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 8

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/41594
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/41594

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Elínborg Árnadóttir 2000-. Erfðafjölbreytileiki íslenska hrossastofnsins. 2022. http://hdl.handle.net/1946/41594