Agricultural University of Iceland
Framtíðarsýn að Keldum. Kyrrlátt hverfi með vistvænum endurbótum í bíllausu umhverfi
Abstract
dc:description.abstractMarkmið verkefnis er að setja fram skipulagstillögu fyrir nýtt hverfi að Keldum sem leggur áherslu á umhverfið og fólkið. Keldur liggur austur af Elliðavogi, það tilheyrir Grafarvogi og er norð-austur af Húsahverfi í Reykjavík. Í Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010 - 2030 er lögð áhersla á þétta, blandaða og vistvæna græna byggð. Tillagan að skipulaginu er lögð fram með áherslu á þéttingu byggðar, gildi grænnar borgar og vistvænar samgöngur og er því unnin í samræmi við markmið skipulagsstefnu Reykjavíkurborgar. Haft er í huga gildi lýðheilsu og gæði umhverfis. Skipulagstillagan felur í sér blandaða byggð með íbúðasvæði, en einnig atvinnuafþreyingar- og þjónustusvæði sem þjónar nýja hverfinu sjálfu og þeim sem tengjast því, Ártúnshöfða og Gufunesi þar sem er gott útivistarsvæði. Í útfærslu þessa nýja hverfis á Keldum er lögð áhersla á að þétta nærliggjandi hverfi með vistvænum almenningssamgöngum, Borgarlínu, hjóla- og göngustígum. Gert er ráð fyrir í tillögunni að Borgarlína muni liggja um hverfið. Aðaláhersla er á umhverfi og fólk, en bílinn verður ekki sýnilegur. Aðaltilgangur skipulagstillögunnar er að skapa vistvænt hverfi þar sem notuð er hugmyndafræðin um grænt byggingarumslag sem bætir græna innviði og loftgæði íbúanna. Forsenda hugmyndarinnar, sem sett er fram í þessu verkefni, er sú að undir rannsóknarsvæðinu komi einn stór niðurgrafinn bílakjallari á tveimur hæðum með lyftu uppá yfirborðið. Hann verður staðsettur á þremur stöðum neðanjarðar, undir kjarna svæðinu, undir skólasvæðinu og undir hluta af íbúðasvæðinu. Fyrir ofan bílakjallarann eru íbúðir, sameiginlegt útivistarsvæði, garðar, ýmis þjónusta og stoppustöð fyrir Borgarlínu. Niðurstaða verkefnisins gefur til kynna að hægt er með auðveldum hætti að skipuleggja þétta og vistvæna byggð þar sem einkabíllinn er ekki sjáanlegur og íbúar og aðrir nýta sér vistvænar samgöngur. Þar sem áhersla er á lýðheilsu og gæði umhverfis. Ætti niðurstaða verkefnisins því að nýtast við skipulagninu annarra hverfa á höfuðborgarsvæðinu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Arwa Ahmed Hussein Al-Fadhli 1980-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/40890
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/40890