Back to search

Agricultural University of Iceland

Áhrif skyldleikaræktar á eistnastærð íslenskra stóðhesta

Abstract

dc:description.abstract

Frá árinu 2003 hafa allir stóðhestar sem komið hafa til dóms þurft að fara í mælingu og skoðun á eistum. Niðurstöður mælinga sem þannig hafa safnast hafa ekki verið nýttar til rannsókna fyrr en nú. Lítið var vitað um normalgildi stærðar eistna hjá íslenska hestingum og hingað til hefur því aðeins verið miðað við stærðartölur fengnar úr rannsóknum á erlendum hestakynjum. Vegna þess að stærð eistna og frjósemi eru nátengd er mikilvægt að þekkja þessar stærðir fyrir íslenska hesta. Eitt af markmiðum þessa verkefnis var að komast að því hver meðallengd og meðalbreitt eistna er hjá íslenskum stóðhestum. Rannsókn þessi bendir til þess að lengd eistna sé u.þ.b. 10 sm en breidd u.þ.b 5,5 sm. Ýmsir þættir hafa áhrif á eistnastærð dýrategunda þar á meðal hesta. Niðurstöðurnar gefa til kynna að eistu íslenskra stóðhesta styttast með aukinni skyldleikarækt. Einnig benda niðurstöðurnar til þess að aldur viðkomandi grips og sá mánuður sem mæling er framkvæmd í hafi áhrif á bæði mælda stærð eistna og stinnleika þeirra. Skyldleikarækt hefur greinilega marktæk neikvæð áhrif á eistnastærð íslenskra stóðhesta. Mikilvægt er að vera á varðbergi og fylgjast vel með hver þróunin verður í eistnastærð íslenskra stóðhesta í framtíðinni þar sem hún tengist frjósemi þeirra.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sunna Birna Helgadóttir 1978-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/40657
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/40657

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sunna Birna Helgadóttir 1978-. Áhrif skyldleikaræktar á eistnastærð íslenskra stóðhesta. 2022. http://hdl.handle.net/1946/40657