Back to search

Agricultural University of Iceland

Áhrif umhverfis á útskilnað niturs í kúamjólk

Abstract

dc:description.abstract

Áhrif umhverfis á útskilnað niturs (úrefnisstyrk) í mjólk íslenskra kúa hafa ekki áður verið sérstaklega rannsökuð á kerfisbundinn hátt. Samband á milli úrefnisstyrks og annarra innihaldsefna í mjólk íslenskra kúa er einnig óþekkt sem og hvaða áhrif aukinn úrefnisstyrkur hefur á nyt, frjósemi og fjölda burða (endingu) íslenskra kúa. Þar sem erlendar rannsóknir gefa ekki einhliða niðurstöður og breytileiki er í úrefnisstyrk á milli kúakynja, þá er erfitt að heimfæra niðurstöður erlendra rannsókna á úrefnisstyrk yfir á íslenskar kýr. Rannsókn þessi leitaðist við að svara því hver áhrif umhverfis eru á úrefnisstyrk í íslenskri kúamjólk og hvernig nýta megi niðurstöður úrefnismælinga sem bústjórnartæki. Notast var við 49.464 einstaklingsmælingar af 6.323 mjaltaskeiðum (afurðamælingar) frá 3.530 kúm af 33 búum við úrvinnslu gagna. Auk þess var spurningalisti lagður fyrir bændur og niðurstöður hans notaðar til að leggja mat á hvað veldur breytileika á milli búa. Meðalúrefnisstyrkur í mjólk íslenskra kúa var 6,2±1,4 mmól/l en hann breyttist eftir stöðu á mjaltaskeiði (DIM), eftir árstíma og með auknum fjölda mjaltaskeiða (aldri). Marktækt veikt ólínulegt samband var á milli úrefnisstyrks og annarra innihaldsefna í mjólk en jákvætt samband var á milli úrefnisstyrks og nytar sem og bils á milli burða. Úrefnisstyrkur hafði ekki áhrif á endingu kúa. Breytileiki á úrefnisstyrk á milli kúa innan búa skýrist líklega af getu kúnna til að innbyrða fóður og jafna sig á neikvæðu orku- og próteinjafnvægi í upphafi mjaltaskeiðs. Breytileika á úrefnisstyrk á milli kúabúa mátti einna helst rekja til próteinstyrks í gróffóðri. Sterkt jákvætt samband var á milli úrefnisstyrks í mjólk og próteinsstyrks í gróffóðri. Próteinmagn í kjarnfóðri skýrði til viðbótar við próteinmagn í gróffóðri lítinn breytileika á úrefnisstyrk í mjólk. Nota má efnamælingar á úrefnisstyrk í mjólk sem bústjórnartæki en varast skal að draga of miklar ályktanir út frá einu sýni.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðrún Björg Egilsdóttir 1993-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 11

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/39764
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/39764

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðrún Björg Egilsdóttir 1993-. Áhrif umhverfis á útskilnað niturs í kúamjólk. 2021. http://hdl.handle.net/1946/39764