Agricultural University of Iceland
Tíðni þrýstingsáverka í munni kynbótahrossa á LM 2014-2018 og helstu áhrifaþættir
Abstract
dc:description.abstractÖll hross sem mæta í kynbótadóm undirgangast heilbrigðisskoðun. Á héraðssýningum eru það starfsmenn Rannsóknamistöðvar landbúnaðarins (RML) sem framkvæma heilbrigðisskoðannir en á Landsmóti hestamanna (LM), sem haldið er annað hvert ár, er kveðið á um heilbrigðisskoðun undir umsjón Matvælastofnunar (MAST). MAST fylgir fyrirkomulagi sem kallast „klár í keppni“ þar sem hross eru skoðuð af dýralækni áður en þau fara í sýningu; fordóm, yfirlit og verðlaunaafhendingu, á meðan starfsmenn RML framkvæma sína skoðun strax eftir fordóm og yfirlit. Í heilbrigðisskoðun MAST er hrossum framvísað á stallmúl en alla jafna eru hrossin með mél upp í sér við skoðun RML. Markmið þessa verkefnis var að lýsa tíðni þrýstingssára í munni kynbótahrossa á LM 2014 -2018 samkvæmt gögnum frá framangreindum skoðunum. Lýst er mismunandi aðferðum við skoðanir á munni hesta og áhrif þeirra greind ásamt öðrum mögulegum áhrifaþáttum; landsmótsári, aldri, kyni og aðaleinkunn hæfileika. Samkvæmt gögnum frá MAST voru 40% kynbótahrossa (226 af 559) sem skoðuð voru á landsmótum á tímabilinu 2014 – 2018 með áverka í munni en samkvæmt gögnum frá RML var tíðnin einungis 2% (12/559). Frekari greiningar á gögnum frá MAST sýndu marktækan mun á tíðni þrýstingsáverka í munni milli þeirra ára/landsmóta sem voru til skoðuðunar. Við skoðun kynbótahrossa fyrir yfirlitssýningu á LM 2014 voru 50% (N=119) með áverka í munni en sambærilegar tölur fyiri LM 2016 sýndu lækkun niður í 30% (N=48). Á LM 2018 hækkaði tíðnin aðeins aftur, í 36% (N=59). Ekki kom fram að aldur hrossa, kyn eða árangur þeirra í kynbótadómi hefði áhrif á tíðni þrýstingsáverka í munni. Niðurstöðurnar sýndu umtalsverðan árangur við að draga úr þrýstingssárum í munni kynbótahrossa frá LM 2014, þegar bann var lagt við notkun stangaméla með tunguboga í hvers kyns sýningum og keppni. En betur má ef duga skal því á LM 2018 reyndist enn um þriðjungur kynbótahrossa með sár í munni, tengd beislsbúnaði, eftir fordóm. Það bendir til þess að enn sé of mikill þrýstingur á munn hesta við kynbótasýningar. Þrýstingssár í munni uppgötvast ekki nema við nokkuð ítarlega skoðun þar sem munnur hestsins er opnaður og þess gætt að ekkert sé þar sem hindrar sýn að slímhúð í kinnum, tungu, munnvikum og á tannlausa bilinu. Hinn mikli munur sem kom fram á niðurstöðum eftir skoðunaraðferðum sýnir hve mikilvægt er að þær séu framkvæmdar með sambærilegum hætti svo hægt sé að meta þróunina og vinna áfram að bættri velferð kynbótahrossa.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Inga Hanna Gunnarsdóttir 1997-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/38815
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/38815