Back to search

Agricultural University of Iceland

Ofanvatnsskipulag Blágrænar ofanvatnslausnir í skipulagi

Abstract

dc:description.abstract

Vísindamenn spá nú fyrir um breytingar á veðurfari í heiminum í tengslum við hlýnun jarðar og spá þeir fyrir um aukna tíðni mikilla vatnsveðra auk ákafari regnskúra. Á mörgum þéttbýlissvæðum munu þær lausnir í veitumálum sem nú er notast við ekki ráða við þessa auknu tíðni vatnsveðra og aukið magn ofanvatns. Þetta á einnig við á ákveðnum stöðum á Íslandi bæði innan höfuðborgarsvæðisins og utan þess. Alþjóðlegar stefnur á sveitarfélagsstigi, t.d. Staðardagskrá 21, einnig þekkt sem Álaborgarsamþykktin, kalla eftir vistvænni uppbyggingu innviða í borgum og bæjum þ.m.t á veitukerfum. Mörg sveitarfélög á Íslandi svara þessu kalli í gegnum markmiðasetningu í skipulagsáætlunum sínum sem byggð eru á markmiðum ríkisins um vistvæna uppbyggingu sem mótuð eru eftir alþjóðlegum stefnum eins og heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Markmið rannsóknarinnar var að rannsaka er hvort hægt sé að nota skipulagskerfið á Íslandi til að auðvelda og einfalda innleiðingu svokallaðra blágrænna ofanvatnslausna á Íslandi auk þess að leitað er leiða til að samþætta það ferli betur við skipulagsferla með skipulagsáætlanir í huga. Rýnt er í skipulagsferla og skoðað verður hvernig hægt sé að nota skipulagskerfið til að vinna vistvænna skipulag í sveitarfélögum með blágrænar ofanvatnslausnir í huga þannig að hægt sé að stefna að þéttingu byggðar án þess að ganga um of á þau grænu svæði sem þegar eru til staðar innan þéttbýlisins. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að með því að vinna sérstakt ofanvatnsskipulag fyrir meðhöndlun ofanvatns með blágrænar ofanvatnslausnir í forgrunni, í formi svokallaðs sértæks skipulags yrði auðveldara að vinna út frá afrennslissvæði/vatnasviði viðkomandi svæðis. Þá gengur slíkt skipulag þvert á hverfa- og sveitarfélagsmörk auk þess að slíkt skipulag býður uppá það að skilmálar þess séu rétthærri gildandi skilmálum á deiliskipulagsstigi sem fyrir eru á svæðinu. Nýtt skipulagstæki, sértækt skipulag, þar sem meðhöndlun ofanvatns væri gefin sérstök athygli í sértæku ofanvatnsskipulagi gæti verið stórt skref á átt að í innleiðingu slíkra lausna í hið byggða umhverfi á Íslandi vegna aðlögunar að lofslagsbreytingum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Andri Þór Andrésson 1984-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 10

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/37290
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/37290

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Andri Þór Andrésson 1984-. Ofanvatnsskipulag Blágrænar ofanvatnslausnir í skipulagi. 2020. http://hdl.handle.net/1946/37290