Back to search

Agricultural University of Iceland

Tengsl hæðar yfir sjávarmáli og gróðurfars í fjöllum Öxnadals

Abstract

dc:description.abstract

Verkefnið fólst í því að kanna gróðurfar fjalla á nokkra mismunandi vegu. Kannað var hvaða áhrif aukin hæð yfir sjávarmáli hafði á gróðurfar, þá bæði gróðurþekju og tegundasamsetningu. Einnig var skoðað hvort lega rannsóknar-reitanna eftir höfuðáttum hefði marktæk áhrif á gróðurfar þeirra. Gögnum verkefnisins var safnað árið 2008 af teymi frá Náttúrufræðistofnun Íslands, en eftir það biðu þau úrvinnslu. Gögnunum var safnað af fjórum tindum í Öxnadal, sem er staðsettur í innanverðum Eyjafirði. Öllum gögnum var safnað eftir stöðlum alþjóðlega verkefninu GLORIA (Global Observation Research Initiative Alpine environments). Með því móti eru öll gögnin hæf til samanburðar við ný gögn, þegar þeim verður safnað. Gögnin voru loks greind vorið 2020. Niðurstöður sýndu að tegundum fækkaði og gróðurþekja minnkaði þegar farið var hærra yfir sjávarmál. Einnig mátti sjá breytingu í eðli tegundanna frá neðsta tindinum og annarra tinda. Strax á öðrum tindi, 700 m. h.y.s. voru farnar að birtast svokallaðar fjallategundir. Einnig var kannað hvort að lega reitanna eftir höfuðáttum hefði áhrif á gróðurfar þeirra. Niðurstöðurnar bentu til þess að lega reitanna hafði ekki nógu mikil áhrif á þá til þess að reikna með að það væri samband þar á milli. Í sumum áttum höfðu reitirnir þó meira sameiginlegt en í öðrum. Einng voru áhrifaþættirnir sem mynduðu breytileika á milli tinda ekki þeir sömu á öllum höfuðáttum. Í öllum þeirra var hæð yfir sjávarmáli (h.y.s.) áhrifaþáttur. Magn skriða og auðrar jarðar var einnig algengur áhrifaþáttur.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Eva Margrét Árnadóttir 1997-
Contributors dc:contributor
  • Landbúnaðarháskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/36048
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/36048

Chain of custody

source
Harvested from
Agricultural University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Eva Margrét Árnadóttir 1997-. Tengsl hæðar yfir sjávarmáli og gróðurfars í fjöllum Öxnadals. 2020. http://hdl.handle.net/1946/36048